Umhverfisdagur atvinnulífsins 2019

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 9. október 2019 í Hörpu. Dagskrá hefur nú verið birt og er skráning í fullum gangi hér á vef SA. Boðið er upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá og vissara að tryggja sér sæti sem fyrst.

Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10 þegar gert verður kaffihlé. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir m.a. Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019, fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað.

Nánari upplýsingar um viðburðinn, umhverfisverðlaunin sjálf og skráning eru á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins.

DAGSKRÁ

Setning
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Umhverfismál og auðlindanýting á Norðurslóðum
Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins.

Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Loftslagsbreytingar og fjárfestingar
Brynjólfur Stefánsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum.

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin.

Kaffihlé kl. 10-10.15

DAGSKRÁ SEINNI HLUTA

Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins.

Jákvæðar fyrirmyndir
Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla

Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið
Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ

Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum
Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku.

Aðlögun að loftslagsbreytingum
Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf.

12.00 Súpa, spjall og netagerð

Fundarstjóri: Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri Samtaka iðnaðarins í menntamálum.