Norræna vatnsveituráðstefnan 2018

Norræna vatnsveituráðstefnan 2018 verður haldin 11.-13. júní í Osló, Noregi.

Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og þar koma saman sérfræðingar Norðurlandanna í vatnstengdum fræðum og fjalla um hinar ýmsu hliðar á vatnsveitum og drykkjarvatni.  Metnaðarfull dagskrá verður í boði og fjallað um ýmist dreifikerfi vatns, rekstur vatnsveitna, fræðslu, gæði og meðhöndlun drykkjarvatns, vatnsvernd og fleira.

Skráning á ráðstefnuna stendur yfir. Frestur til að skrá sig rennur út 1. júní.

OSLÓ, NOREGI: Torgið fyrir framan þinghúsið