Menntadagur atvinnulífsins 2021

Menntadagur atvinnulífsins fer fram 4. febrúar 2021 en þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Á menntadeginum fer fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fram með rafrænum hætti.

Meðal innslaga í þættinum eru:

Greiningar- og nýsköpunarhæfni
Finnur Oddsson, forstjóri Haga
Virkni í námi og námsaðgerðum
Ingvi Hrannar, kennari og frumkvöðull
Lausnamiðuð nálgun
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Gagnrýnin hugsun og greining
Kristín Friðgeirsdótir, alþjóðlegur stjórnendaráðgjafi
Sköpun, frumleiki og frumkvæði
Dóra Jóhannsdóttir, leikkona
Forysta og félagsleg áhrif
Tryggvi Þorgeirsson, stofnandi og eigandi Sidekick Health

Tækninotkun, eftirlit og stjórn
Anna María Pálsdóttir, Marel – framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar
Tæknihönnun og forritun
Ægir Már Þórisson Advania, forstjóri Advania
Seigla, streituþol og sveigjanleiki
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Rökhugsun, lausn vandamála og hugmyndafræði
Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar hjá Eyri Venture Management.

Menntatorg atvinnulífsins verður á sínum stað undir stjórn Söru Daggar Svanhildardóttur, verkefnastjóra mennta- og fræðslumála SVÞ og líflegar umræður um menntamál Íslendinga í víðu samhengi setja svip sinn á þáttinn.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA stýrir þætti.

Það verður forvitnilegt að sjá hvaða fyrirtæki bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið menntaverðlaun atvinnulífsins til þessa. Orkuveita Reykjavíkur er menntafyrirtæki ársins 2020 og Samkaup menntasproti ársins 2020.

Skráning er hafin á vef Samtaka atvinnulífsins.