Menntadagur atvinnulífsins 2020

Menntadagur atvinnulífsins 2020 fer fram í Hörpu, miðvikudaginn 5. febrúar, í Norðurljósum kl. 8.30-11.30.

Menntadagurinn er árlegur viðburður, að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Skráning á fundinn og nánari dagskrá er á vef SA.

DAGSKRÁ

Kl. 8.30-10

  • Hvernig styður skapandi hugsun viðskiptaþróun?
  • Um skapandi vinnuumhverfi
  • Skapandi eða apandi?
  • Tengsl stefnumótunar
  • Hönnunarhugsun í nýsköpun
  • Geta allir lært að skapa?
  • Sköpun í ferli og flæði
  • Hvenær notum við sköpun?
  • Hönnunarhugsun í nýsköpun

Menntaverðlaun atvinnulífsins
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020.

Kl. 10-10.30
Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna fjölbreytt nám og þjónustu á menntatorgi.

Kl. 10.30-11.30

Málstofa

Að vinna markvisst með sköpun í menntun og á vinnustaðnum
Camilla Uhre Fog skólastjóri International Scool of Billund og fyrrum stjórnandi hjá Lego Foundation.

Lesblinda
Sylvía Melsted, frumkvöðull og tónlistarkona, ásamt gestum.