Útboð

27. október 2017

Samantekt yfir spurningar og svör vegna útboðs SAMORKU á jarðstrengjum 01/2017.
Questions and answers regarding Samorka‘s tender 01/2017.

Tender questions and answers list-Samorka_01_2017

5. október 2017

ATH. breytingu á útboðsgögnum fyrir rafmagnsstrengi

Þann 16. september s.l. óskaði Samorka eftir tilboðum í jarðstrengi fyrir nánar tilgreindar dreifiveitur. Komið hefur í ljós að nauðsynlegt er að gera neðangreindar breytingar á útboðsgögnunum.
Jafnframt hafa borist spurningar um útboðgögnin og hér að neðan má sjá spurningarnar og svörin við þeim.

Útboð SAMORKU á jarðstrengjum breytingar á útboðsgögnum og fyrirspurnir

Með hliðsjón af framanrituðu hefur jafnframt verið ákveðið að fresta opnun tilboða til þriðjudagsins 7. nóvember 2017 kl. 14:00.

 

16. september 2017
Útboð – rafmagnsstrengir 

Samorka óskar eftir tilboðum í jarðstrengi fyrir neðan- greindar dreifiveitur. Útboðsgögnin eru afhent rafrænt. Hafa skal samband í tölvupósti í netfangið baldur@samorka.is, en einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu SAMORKU – www.samorka.is.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) (http://ted.europa.eu).

Meginatriði útboðs Samorku á jarðstrengjum

Um er að ræða útboð á eftirfarandi rafmagns jarðstrengjum (Underground Power Cables): 1 kV, 12 kV og 24 kV jarðstrengir fyrir RARIK ohf., HS veitur hf., Norðurorku hf., Orkubú Vestfjarða ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur. Um nánari lýsingu er vísað til útboðsgagna. Samningstíminn er þrjú ár, þ.e. til ársloka 2021 með möguleika á framlengingu.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt frá og með 18. september 2017.

Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 24. október, kl. 14:00 á skrifstofu Samorku, Borgartúni 35, 3. hæð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Útboðsgögnin má nálgast hér á eftirfarandi slóðum:

03018008-5-UG-0076-Utbodsgogn_Strengir_Samorka_01-2017.

Samorka_01-2017_Bill_of_quantities