Umsóknarfrestur um fráveitustyrki framlengdur

Frestur fyrir sveitarfélög til að skila inn umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda hefur verið framlengdur til 15. apríl. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Skilyrði er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir og framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts. Einnig er meðal skilyrða er að kostnaður hafi fallið til eftir 1. janúar 2020.

Nánari upplýsingar má sjá á vef Stjórnarráðsins.