Aðalfundur 2021

Aðalfundur Samorku var haldinn með rafrænum hætti þann 10. mars 2021.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar, var kjörin formaður Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Hún er fyrsta konan sem gegnir embætti formanns Samorku í sögu samtakanna. Berglind tekur við af Helga Jóhannessyni, forstjóra Norðurorku, sem gegnt hefur stöðunni síðustu fimm ár. Helgi var kjörinn aðalmaður í stjórn til næstu tveggja ára ásamt þeim Sigurði Þór Haraldssyni, veitustjóra hjá Selfossveitum, og Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra HS Orku.

Í stjórn sitja jafnframt áfram þau Gestur Pétursson, forstjóri Veitna, Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets og Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Þá var Helga Jóhanna Oddsdóttir sviðsstjóri hjá HS Veitum kjörin varamaður í stjórn Samorku í fyrsta sinn. Þau Arndís Ósk Ólafsdóttir, forstöðumaður hjá Veitum, Elías Jónatansson, orkubússtjóri hjá Orkubúi Vestfjarða, Gunnar Hrafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur og Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar sitja áfram sem varamenn í stjórn.

Stjórn Samorku, að loknum aðalfundi 2021, skipa:

Aðalmenn:

Berglind Rán Ólafsdóttir, formaður stjórnar, Orku náttúrunnar
Gestur Pétursson, Veitum
Guðmundur Ingi Ásmundsson, Landsneti
Helgi Jóhannesson, Norðurorku,
Kristín Linda Árnadóttir, Landsvirkjun
Sigurður Þór Haraldsson, Selfossveitum
Tómas Már Sigurðsson, HS Orku

Varamenn:

Arndís Ósk Ólafsdóttir, Veitum
Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða
Gunnar Hrafn Gunnarsson, Orkuveitu Húsavíkur
Helga Jóhanna Oddsdóttir, HS Veitum
Hörður Arnarson, Landsvirkjun

Lög Samorku eftir breytingar á aðalfundi 10 mars 2021

Ályktun aðalfundar 2021

Ársskýrsla Samorku var gefin út rafrænt í fyrsta sinn í ár. Hér má skoða ársskýrsluna.