Skráning hafin á Norrænu vatnsveituráðstefnuna

Norræna vatnsveituráðstefnan 2016 verður haldin í Hörpu í Reykjavík dagana 28. – 30. september.

Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og þar koma saman sérfræðingar Norðurlandanna í vatnstengdum fræðum og fjalla um hinar ýmsu hliðar á vatnsveitum og drykkjarvatni. Metnaðarfull dagskrá verður í boði með alls 90 erindum sem fjalla um ýmist dreifikerfi vatns, rekstur vatnsveitna, fræðslu, gæði og meðhöndlun drykkjarvatns, vatnsvernd og fleira.

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Skráning er hafin á heimasíðu ráðstefnunnar, ndwc.is.