Desemberfundur 2017

Desemberfundur Samorku verður haldinn fimmtudaginn 7. desember á Hilton Reykjavík Nordica. Vinsamlegast skráið þátttöku á forminu neðar á síðunni.

Fundurinn er ætlaður aðal- og aukafélögum í Samorku og er ekki opinn almenningi.

Almennur fundur hefst kl. 15.30 með fræðandi dagskrá og honum lýkur með jólahlaðborði á VOX Club, þar sem borðin svigna undan kræsingum að hætti hússins. Landsþekktir skemmtikraftar munu sjá um að koma öllum í jólaskap.

 

Dagskrá:

Kl. 15 – Kaffiveitingar
Kl. 15.30 – 17.30 – Desemberfundur Samorku
Kl. 18.30 – 19 – Fordrykkur
Kl. 19 – Jólahlaðborð og skemmtun

Verð fyrir jólahlaðborð á mann er 16.000 og fordrykkur er innifalinn.

Stefanía Svavarsdóttir, Karl Olgeirsson, Vignir Snær Vigfússon og Jógvan Hansen eru skemmtikraftar jólahlaðborðs VOX í ár.

Hilton Reykjavík Nordica býður sérkjör á herbergjum fyrir þá sem það vilja:

Single herbergi með morgunmat: 24.000 kr.
Double herbergi með morgunmat: 35.500.

Senda skal bókun á netfangið miceres@icehotels.is og taka fram að þið séuð á vegum Samorku. Hægt er að óska eftir herbergi án morgunmatar og lækkar verðið þá lítillega.

    Ég mæti á jólahlaðborð (verð 16.000)
    Ég tek með gest/maka á jólahlaðborðið (verð 16.000)
    Skrá mig á póstlista fréttabréfs Samorku