Fagfundur raforkumála 2016

Samorka vill þakka öllum þátttakendum fyrir góðan fagfund á Grand hótel 26. og 27. maí. Það varpaði að vísu nokkrum skugga á, að færa þurfti fundinn frá Ísafirði til Reykjavíkur, en það er almennt mat að fundurinn hafi flutt okkur mikinn og góðan fróðleik um hina fjölbreyttustu þætti orkumálanna og að skapast hafi gott samfélag orkufólks á fundarstað.

Sérstakar þakkir fá fyrirlesarar og fundarstjórar, sem gerðu fundinn að þeim þekkingarbrunni sem raun varð.

Erindi fimmtudags 26. maí

Ávarp formanns og fundarsetning: Helgi Jóhannesson, formaður Samorku
Ávarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Ragnheiður Elín Árnadóttir
Orkumál til framtíðar – Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri
Rammaáætlun: Stefán Gíslason, formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar
Öryggismál: Stuðningur stjórnenda í verki – Inga Dóra Hrólfsdóttir, Veitur
Öryggismál: Næstum slys og slysahættur 2000-2015 – Ásgeir Þór Ólafsson, RARIK
Öryggismál: Varnir við ljósbogahættum – Birgir Örn Birgisson, OV
Öryggismál: Stýring áhættu í öryggis-, heilsu- og vinnuverndarmálum – Kristján Kristinsson, Landsvirkjun
Nýja Samorka – endurmörkun: Lovísa Árnadóttir, Samorka
Margt er gott í orkumálum: Guðfinnur Þór Newman, Samorka
Virkjanakostir Orkubús Vestfjarða: Sölvi Sólbergsson, OV
Virkjanakostir Vesturverks: Gunnar Gaukur, Vesturverk
Auðlindagarður HS Orku: Kristín Vala Matthíasdóttir, HS Orka
Gróður, mosi og súrmjólk, frágangur og landgræðsla: Magnea Magnúsdóttir, ON

Erindi föstudags 27. maí

Ástand háspennustrengja: Hilmar Jónsson og Finnur Tómasson, Veitur
Raforkuspá 2015-2050: Ingvar Baldursson, EFLA verkfræðistofa
Orkumælar og mælingar hjá Orkubúi Vestfjarða: Ragnar Emilsson, OV
Snjallvæðing orkukerfisins: Guðjón Hugberg Björnsson, Landsnet
Upprunaábyrgðir raforku: Þrándur Sigurjón Ólafsson, ON
Konur í orkumálum: Auður Nanna Baldvinsdóttir, stjórn KíO, Landsvirkjun
Verðin á vefinn: Auður Nanna Baldvinsdóttir, Landsvirkjun
Orkuskipti til lands og sjávar: Tryggvi Þór Haraldsson, RARIK
Tenging vindmylla, sólarsella og smávirkjana við dreifikerfin: Kjartan Rolf Árnason, RARIK
Virkjanaleyfi fyrir vindorkukosti: Skúli Thoroddsen, Orkustofnun
Nýjar virkjanir og stækkun eldri virkjana Landsvirkjunar: Gunnar Guðni Tómasson, Landsvirkjun
Nýtt stjórnkerfi hjá Veitum: Guðjón Björnsson og Benedikt Einarsson, Veitur