|
|
02.02.2010
Ráðherrann vanhæfur?
Umhverfisráðherra hefur synjað staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Ráðherrann hefur áður tafið þetta ferli með úrskurðum um formsatriði sem þá tengdust auglýsingum á breyttu skipulagi. Spurð um afstöðu til virkjana í neðri hluta Þjórsár segir ráðherrann rétt að fara varlega í nýjar virkjanir. Getur hugsast að ráðherrann sé einfaldlega mótfallinn þessum framkvæmdum, og þá vanhæfur til að úrskurða um formsatriði sem þeim tengjast? Þá vekur athygli að ráðherrann virðist ekki skilja eðli endurnýjanlegra orkulinda, heldur líkir hún nýtingu þeirra við námugröft. Loks má setja spurningamerki við að það sé í þágu almannahagsmuna að setja jafnvel stórframkvæmdir í uppnám, fyrir nú utan þá sérkennilegu stjórnsýslu að segja niðurstöðuna borðleggjandi eftir fjórtán mánaða yfirlegu í ráðuneytinu.
Lesa meira...
28.01.2010
Hreint vatn og hrein orka: Ísland stendur sig best í umhverfismálum
Ísland er í fyrsta sæti 163 ríkja á lista þar sem löndum er raðað eftir frammistöðu í umhverfismálum, en listinn er unninn af sérfræðingum við Columbia- og Yale- háskólana í Bandaríkjunum. Alls er byggt á upplýsingum um 25 viðmið og er Ísland með hæstu mögulegu einkunn í ellefu tilvikum. Það eru einkum hreina vatnið og hreina orkan sem eru lykillinn að þessari sterku stöðu Íslands.
Lesa meira...
10.12.2009
Samorka mótmælir nýjum orkusköttum
Stjórn Samorku mótmælir þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja nýja skatta á raforku og heitt vatn, skatta sem draga munu úr lífsgæðum landsmanna og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, auk þess að draga úr gegnsæi verðlagningar á raforku og heitu vatni. Aldrei hafa áður verið lagðir beinir skattar á raforku eða heitt vatn hér á landi. Frumvarpið vísar til umhverfis- og auðlindaskatta, en fjallar um hvorugt, heldur er þetta einfaldlega skattur á orkunotkun landsmanna, til tekjuöflunar í ríkissjóð.
Lesa meira...
09.12.2009
Megum bara nota ál frá Íslandi
Íslenska jarðhitafyrirtækið Reykjavik Geothermal vinnur nú að nýtingu jarðhita fyrir borgina Masdar, sem verið er að reisa í olíuríkinu Abu Dhabi. Borgin á að vera kolefnishlutlaus og úrgangslaus, en auk sólarorku hyggjast forsvarsmenn verkefnisins nýta þar jarðhita, einkum til að knýja kælikerfi borgarinnar. Grímur Björnsson, jarðeðlisfræðingur hjá Reykjavik Geothermal, fjallaði um verkefnið á haustþingi Jarðhitafélagsins í gær. Í máli hans kom fram að svo ströngum reglum er fylgt við byggingu borgarinnar, að fyrirtækið má ekki nota þar ál til dæmis í skiltagerð nema það sé frá Íslandi. Ál framleitt hér á landi hefur jú þá sérstöðu að það er framleitt með raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum.
Lesa meira...
21.10.2009
Erindi opins fundar um sjálfbæra nýtingu jarðhitans
Sjálfbær nýting jarðhitans var yfirskrift opins fundar á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 21. október. Á þriðja hundrað manns sóttu fundinum en að honum stóðu Samorka, ÍSOR, Orkustofnun, Iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands og GEORG (Geothermal Reserch Group). Erindi fundarins er að finna hér á vef Samorku.
Lesa meira...
21.10.2009
3000 MW úr 0,2% varmaforðans á 3 km dýpi
Jarðhitinn getur leikið mikilvægt hlutverk í sjálfbærri þróun, á Íslandi og á heimsvísu. Þetta kom fram í erindi Guðna Axelssonar, deildarstjóra hjá ÍSOR, á opnum fundi um sjálfbæra nýtingu jarðhitans á Hilton Nordica. Guðni sagði áratuga reynslu og rannsóknir hafa sýnt að hægt væri að nýta jarðhitakerfi á sjálfbæran hátt, því nýtt jafnvægisástand kæmist oft á eftir að nýting hæfist. Guðni sagði sjálfbæra vinnslugetu háða vinnsluaðferð (niðurdæling yki t.d. vinnslugetu) og tækniframförum. Fræðilega séð mætti vinna 3000 MW af raforku úr 0,2% þess varmaforða sem er að finna á 3 km dýpi.
Lesa meira...
21.10.2009
Gríðarmikil jarðhitaorka - nýtingartæknin í þróun
Endurnýjanleiki er eðli orkulindar, sjálfbærni vísar til orkuvinnslu. Á þetta lagði Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR, áherslu í erindi á opnum fundi um sjálfbæra nýtingu jarðhitans á Hilton Nordica. Ólafur varaði við hugtakaruglingi og nefndi ýmis dæmi úr opinberri umræðu þar sem endurnýjanleika og sjálfbærni væri ruglað saman. Hann sagði jarðhitaorkuna hér vera gríðarmikla en við byggjum hins vegar enn aðeins yfir tækni til að nýta hluta hennar á hagkvæman hátt. Þess vegna væri svo mikilvægt að byggja jarðhitavirkjanir upp í áföngum og vinna markvisst að rannsóknum og þróun á tækninýjungum.
Lesa meira...
19.10.2009
Sjálfbær nýting jarðhitans - Opinn fundur á HILTON REYKJAVÍK NORDICA 21. október
Miðvikudaginn 21. október verður haldinn opinn fundur á Hilton Reykjavík Nordical undir yfirskriftinni Sjálfbær nýting jarðhitans. Að fundinum standa GEORG (Geothermal Research Group), iðnaðarráðuneytið, Jarðhitafélag Íslands, ÍSOR, Orkustofnun og Samorka. Fundurinn var áður auglýstur á Grand Hótel en vegna mikillar þátttöku var hann fluttur í stærri sal, á Nordica.
Lesa meira...
17.10.2009
Græna fólkið og skotmörkin
Græna fólkið á erlendum umhverfisfundum er í hlutverki viðurkenndra skotmarka á umhverfisfundum hérlendis, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, í grein í Fréttablaðinu. Hann segir umræðu á umhverfisþingi engu skila, enda hópur fólks þar sem hlæi og klappi þegar orkufyrirtækin fái það óþvegið eða hótfyndni sé beint í þeirra garð.
Lesa meira...
09.10.2009
Hvað á ráðherrann við?
Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, heldur því fram í Morgunblaðinu að raforkuframleiðsla fyrir stóriðju hafi verið stórlega niðurgreidd. Í grein í sama blaði óskar Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, eftir því að ráðherrann færi rök fyrir þessari staðhæfingu sinni, eða dragi hana ella til baka.
Lesa meira...
07.10.2009
30% lægra raforkuverð til heimila vegna aukinnar sölu til stóriðju
Stærra raforkukerfi með meiri sölu til orkufreks iðnaðar hefur leitt til lækkunar á raforku á almenna innlenda markaðinum. Raforkuverð til heimila hefur að jafnaði lækkað um 30% frá árinu 1997, sem að stórum hluta má skýra með auknu umframafli frá orkufrekum iðnaði sem sinnir afltoppum á almenna markaðnum. Þetta er meðal helstu niðurstaðna nýrrar skýrslu AtvinnuLífsinsSkóla um raforkuverð á Íslandi á árunum 1997 - 2008, þar sem skoðuð eru áhrif aukinnar raforkusölu til orkufreks iðnaðar á raforkuverð á almennum markaði.
Lesa meira...
02.10.2009
Óboðlegt starfsumhverfi - Samorka mótmælir úrskurði umhverfisráðherra
Úrskurður umhverfisráðherra hefur að engu lögbundin tímamörk og gengur að auki gegn fyrri úrskurði umhverfisráðherra frá apríl 2008. Úrskurðurinn nú er því dæmi um afleita stjórnsýslu og algert virðingarleysi við lög í landinu. Slíkt starfsumhverfi er engum fyrirtækjum boðlegt. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun stjórnar Samorku. Stjórnin lýsir einnig verulegum áhyggjum af boðuðum orkusköttum sem munu skerða samkeppnishæfni íslenskra orkufyrirtækja og draga úr ágæti Íslands sem fjárfestingarkosts.
Lesa meira...
30.09.2009
Raforkuverð til stóriðju og til almennings - Morgunverðarfundur Samorku miðvikudaginn 7. október
Í nýrri skýrslu AtvinnuLífsins Skóla er fjallað um raforkuverð á Íslandi 1997 2008 og áhrif aukinnar raforkusölu til orkufreks iðnaðar á raforkuverð á almennum markaði. Skýrslan verður kynnt og rædd á morgunverðarfundi Samorku á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 7. október.
Lesa meira...
20.09.2009
Formaður loftslagsnefndar SÞ: Dáist að orkulindum Íslendinga
Rajendra Pachauri, formaður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, segir Íslendinga leiðtoga í baráttunni fyrir minni losun gróðurhúsalofttegunda. Íslendingar eigi miklar endurnýjanlegar orkuauðlindir og skilji mikilvægi þess að nota þær.
Lesa meira...
10.09.2009
Leiðari fréttabréfs SA: Hefjum sókn í orkumálum
Komandi vetur verður landsmönnum mjög erfiður efnahagslega og því er brýnt að hefja nú þegar þær aðgerðir sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins og sveitarfélaga frá því í sumar... Til að hagvöxtur hefjist á ný liggja fjárfestingar í orkugeiranum og tengdum iðju- og gagnaverum beinast við. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, m.a. í leiðara fréttabréfs samtakanna.
Lesa meira...
01.09.2009
Ágæt arðsemi af orkusölu - áherslan fremur á lág verð í veitustarfsemi
Arðsemi af raforkusölu hefur verið ágæt hér á landi, skv. samantekt Melland Partners að beiðni Landsvirkjunar, og ef horft er til arðsemi af rekstri Nesjavallavirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur. Meðalarðsemi eigin fjár Landsvirkjunar var 17,2% árin 2003 til 2007, sem er mun hærra en gerist í Bandaríkjunum og Evrópu, ef marka má nýlega áfangaskýrslu Sjónarrandar ehf. fyrir fjármálaráðuneytið. Svipað má segja ef horft er á arðsemi heildarfjármagns Nesjavallavirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur, sem er um 14%, en arðsemi bandarískra orkufyrirtækja var á þessum tíma að jafnaði um 10% og evrópskra um 13%. Þá segir HS Orka óhætt að fullyrða að arðsemi fyrirtækisins af orkusölu til stóriðju hafi verið nokkuð meiri en af annarri starfsemi fyrirtækisins og hafi jafnframt verið lykillinn að lágu raforkuverði undanfarinna ára.
Lesa meira...
11.08.2009
Hagfræðistofnun HÍ: Orkuverð til stóriðju í meðallagi hátt hérlendis
Raforkuverð til álvera á Íslandi virðist að jafnaði vera í meðallagi hátt á heimsvísu, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Samorka hefur engar frekari upplýsingar um raforkuverð til stóriðju og getur því ekki staðfest þessa ályktun Hagfræðistofnunar. Hins vegar er ástæða til að vekja athygli á þessari niðurstöðu stofnunarinnar þar sem því er iðulega haldið fram að orkuverð til stóriðju sé með lægsta móti hérlendis. Fyrir liggur á hinn bóginn að raforkuverð til heimila og almenns atvinnurekstrar er mun lægra hérlendis en í samanburðarlöndum.
Lesa meira...
Allir hafa þessir fjórir skýrsluhöfundar áður ítrekað dregið sambærilegar ályktanir, í mis ítarlegum skrifum og erindum, og kynntar voru á dögunum í annars lítt frágengnum skýrsludrögum. Frá upphafi lá þar með algerlega ljóst fyrir hverjar þeirra helstu niðurstöður yrðu og því vandséð hví ákveðið var að ráðstafa opinberum fjármunum til þessarar vinnu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku, þar sem hann fjallar um mönnun á skýrslugerð um arðsemi orkusölu til stóriðju.
Lesa meira...
07.08.2009
Mat á arðsemi orkusölu til stóriðju
Einkahlutafélagið Sjónarrönd hefur, fyrir hönd fjármálaráðuneytis, sent frá sér skýrslu um arðsemismat á orkusölu til stóriðjufyrirtækja.
Samorka hefur ýmsar athugasemdir við skýrslugerðina.
Lesa meira...
07.07.2009
Nordic Climate Solutions ráðstefna og sölusýning í Kaupmannahöfn 8.-9. september
Dagana 8. og 9. september stendur norræna ráðherranefndin fyrir ráðstefnu og sölusýningu þar sem fjallað verður um markaðslausnir vegna hlýnunar loftslags. Fjallað verður um hlut endurnýjanlegrar orku, orkunýtingu, viðskipti með losunarkvóta, leiðir til að minnka losun í samgöngum og margt fleira, auk þess sem fjöldi fyrirtækja kynnir vörur sínar og þjónustu á þessu sviði.
Lesa meira...
18.05.2009
Enn af rafsegulsviði
Í Bændablaðinu sem út kom 14. maí s.l. er grein um fósturdauða í ám og gemlingum, eftir Gunnar Björnsson bónda og fósturtalningamann í Sandfellshaga í Öxarfirði. Greinin fjallar á greinagóðan hátt um þetta mikla vandamál íslensks sauðfjárbúskapar og er athyglisverð.
Lesa meira...
11.05.2009
Bilanaleitarnámskeið
Bilananaleitarámskeið Samorku var haldið dagana 7. og 8. maí sl. Þátttakendur víðs vegar að af landinu fóru yfir fræðilega þætti og fylgdu því eftir með staðsetningu á leyndum leka.
Lesa meira...
29.04.2009
Svínainflúensa - heimsfaraldur - hópsýking
Fréttir berast nú um hættu á heimsfaraldri vegna inflúensu sem á uppruna sinn í Mexikó. Samorka tók þátt í vinnu við gerð viðbragðsáætlunar vegna hópsýkinga og gaf út skýrslu um málið. Skýrslan var á sínum tíma, send öllum félögum innan Samorku. Hún er birt hér á heimasíðunni.
Lesa meira...
08.04.2009
Ryki þyrlað upp um virkjanir
Sala á náttúruauðlindum til útlendinga telst nú tæplega líkleg þróun á næstu árum. Ekki er nema tæpt ár síðan Alþingi samþykkti eins konar bandorm lagaákvæða sem leggja bann við sölu á orkuauðlindum í opinberri eigu til einkaaðila. Ennfremur er, þegar þetta er ritað, unnið að því að binda sambærilegt ákvæði um allar íslenskar náttúruauðlindir í stjórnarskrá lýðveldisins. Hugsanleg stefnubreyting í þessu efni er eingöngu fræðileg vangavelta um pólitískar ákvarðanir síðar meir en hefur nákvæmlega ekkert með rekstur íslenskra orkufyrirtækja að gera. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku, í Eldhússdegi Fréttablaðsins. Gústaf fjallar þar um ýmsar hliðar raforkuframleiðslu fyrir stóriðju og bregst við skrautlegri samsæriskenningu.
Lesa meira...
03.04.2009
Af virkjunum og stóriðju
Á næstu vikum má gera ráð fyrir að í samfélaginu fari fram talsverðar umræður um orkumál, ekki síst í samhengi við sölu á raforku til stóriðju. Samorka vill leggja sitt af mörkum til að umræðan geti orðið vel upplýst og í því skyni eru hér sett fram nokkur efnisatriði í þessu sambandi, í stuttu og vonandi aðgengilegu máli.
Lesa meira...
03.04.2009
Fagfundur hita-vatns-og fráveitusviðs
Fagfundur hita-, vatns- og fráveitusviðs verður haldinn á Egilsstöðum dagana 28. og 29. maí 2009. Skráning er hafin en dagskrá og allar nánari upplýsingar má nálgast hér á vef Samorku.
Lesa meira...
01.04.2009
Mikil þátttaka á öryggisnámskeiði Samorku
Hátt í eitt hundrað manns sóttu öryggisnámskeið fyrir rafiðnaðarmenn sem Samorka hélt í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls dagana 1. og 2. apríl. Fjallað var um öryggismál rafvirkja og er það liður í því að fyrirbyggja vinnuslys hjá veitunum. Sérhvert slys er einu slysi of mikið. Við viljum að sjálfsögðu að allt starfsfólk komi heilt heim frá vinnu að loknum vinnudegi. Þessi fundur er viðleitni í átt til þess að svo megi verða.
Lesa meira...
31.03.2009
Samorka leggst gegn tillögum um breytingar á stjórnarskrá
Í umsögn um frumvarp til stjórnskipunarlaga leggst Samorka gegn því að tekin verði inn ný ákvæði um auðlindir og umhverfismál, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Samtökin benda m.a. á að umrædd efnisatriði hafi engan veginn hlotið æskilega umfjöllun í samfélaginu, að afar skammur tími sé engu að síður ætlaður til þessara breytinga á stjórnarskrá lýðveldisins og að ýmis atriði í frumvarpinu séu óljós og þarfnist frekari skýringa, en geti óbreytt valdið réttaróvissu.
Lesa meira...
30.03.2009
Rafmagnsöryggissviðið flutt til Brunamálastofnunar.
Alþingi samþykkti í vikunni lög um flutning á Rafmagnsöryggissviði Neytendastofu til Brunamálastofnunar.
Lesa meira...
23.02.2009
Rafmagnið ódýrast á Íslandi, fjórðungur verðsins í Danmörku
Samorka hefur borið saman rafmagnskostnað heimila í höfuðborgum Norðurlandanna. Rafmagnið er ódýrast í Reykjavík en litlu dýrara í Helsinki. Í Osló er rafmagnið um 35% dýrara en í Reykjavík og um 63% dýrara í Stokkhólmi. Í Kaupmannahöfn er rafmagnið hins vegar langsamlega dýrast, eða meira en fjórfalt dýrara en í Reykjavík.
Lesa meira...
20.02.2009
Krafa um 15-20% samdrátt í losun fyrir 2020?
Á vettvangi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna er stefnt að því að ná samkomulagi um framhald svokallaðrar Kyoto-bókunar í lok þessa árs. Miðað við núverandi forsendur á vettvangi ESB má ætla að Ísland muni þurfa að takast á hendur skuldbindingar um 15-20% samdrátt í almennri losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020, þar sem miðað er við losun árið 2005. Hér á landi verða eingöngu 4% losunarinnar rakin til rafmagns og hita og því ljóst að þetta krefjandi verkefni snýr að takmörkuðu leyti að íslenskum orkufyrirtækjum.
Lesa meira...
20.02.2009
Aðild að ESB: Lítil áhrif á yfirráðarétt og nýtingu orkuauðlinda
Ekki er hægt að halda fram að hugsanleg full aðild Íslands að ESB myndi hafa veruleg áhrif á stöðu okkar og möguleika varðandi yfirráðarétt og nýtingu jarðrænna auðlinda. Þetta er niðurstaða Guðna A. Jóhannessonar orkumálastjóra, sem flutti erindi á aðalfundi Samorku um íslenskar orkulindir og ESB. Guðni sagði þó jafnframt að hugsanlegar viðræður þyrftu að byggja á nákvæmri greiningu á þeirri aðlögun að reglum ESB sem þegar hefur verið samið um og þeim reglum sem eftir er að semja um. Fyrirkomulag eignarhalds náttúruauðlinda væri hins vegar ekki viðfangsefni ESB, heldur alfarið á hendi aðildarríkjanna. Fram kom hjá Guðna að á annan tug erlendra fyrirtækja hafa nú þegar óskað upplýsinga vegna hugsanlegrar olíuvinnslu á Drekasvæðinu.
Lesa meira...
20.02.2009
Niðurgreiðsluhali nýrra hitaveitna að fullu uppgreiddur
Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytis, flutti aðalfundi Samorku ávarp Össurar Skarphéðinssonar utanríkis- og iðnaðarráðherra (sem forfallaðist vegna veikinda). Í ávarpi ráðherra kom m.a. fram að gert er ráð fyrir að nefnd um endurskoðun raforkulaga muni ljúka störfum í haust. Þá kom fram að sá dráttur sem hafði orðið á niðurgreiðslum til nýrra hitaveitna, nefndur hali, sem aðalfundur Samorku ályktaði m.a. vegna á aðalfundi 2008, væri nú að fullu uppgreiddur.
Lesa meira...
20.02.2009
Ályktun aðalfundar Samorku: raunlækkun orkuverðs til fjölda ára
Árum saman hefur verð á bæði heitu vatni og raforku farið lækkandi um land allt, að teknu tilliti til verðlagsþróunar almennt, ef frá eru skilin áhrif kerfisbreytinga sem raforkulög frá árinu 2003 höfðu í för með sér. Verð á raforku til almennra notenda er lægra hérlendis en í helstu samanburðarlöndum og hefur lengi verið. Þetta er ekki sjálfsögð niðurstaða í svo dreifbýlu landi og erfiðu yfirferðar. Sömu sögu má segja um verðlagningu á heitu vatni, sem hefur árum saman farið lækkandi, að teknu tilliti til verðlagsþróunar almennt, enda er húshitunarkostnaður mun lægri hér en í nágrannalöndunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun aðalfundar Samorku, þar sem m.a. er fjallað um endurskoðun raforkulaga, mikilvægi öflugrar grunnþjónustu, loftslagsmál, mikilvægi erlendrar fjárfestingar og um vatnsvernd.
Lesa meira...
20.02.2009
Óbreytt stjórn Samorku
Á aðalfundi Samorku var sitjandi stjórn endurkjörin, aðal- og varamenn. Áður var Franz Árnason endurkjörinn til formennsku. Stjórnina skipa því áfram, auk Franz, þeir Friðrik Sophusson Landsvirkjun, Hjörleifur B. Kvaran Orkuveitu Reykjavíkur, Júlíus Jónsson Hitaveitu Suðurnesja, Páll Pálsson Skagafjarðarveitum, Tryggvi Þór Haraldsson Rarik og Þórður Guðmundsson Landsneti.
Lesa meira...
20.02.2009
Franz Árnason endurkjörinn formaður Samorku
Á aðalfundi Samorku var Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, einróma endurkjörinn formaður samtakanna til næstu tveggja ára, en hann var áður kjörinn formaður á aðalfundi samtakanna árið 2007, einnig til tveggja ára.
Lesa meira...
09.02.2009
Stærsti þátturinn í auknu heilbrigði og bættum lífsgæðum þjóðarinnar
Uppbygging hitaveitna á Íslandi á síðustu öld er án efa sá atburður Íslandssögunnar sem stuðlað hefur hvað mest að auknu heilbrigði og lífsgæðum þjóðarinnar. Þetta er meðal niðurstaðna skýrslu um heilsufarsáhrif heitavatnsnotkunar á Íslandi sem Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri hefur unnið að beiðni Samorku. Hreinna andrúmsloft, betur hituð hýbýli, sundlaugamenning, heilsuböð, bættur þrifnaður, lækningamáttur og forvarnagildi heitra baða og margt fleira er til umfjöllunar í skýrslunni. Fram kemur að árleg heildarlosun CO2 á Íslandi er um 45% lægri en ef kynt væri með olíu.
Lesa meira...
08.02.2009
Fullyrðingar um raforkuverð
Í grein í Morgunblaðinu svarar Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, fullyrðingum um að hérlendis sé raforka seld lægstbjóðendum, líkt og haldið var fram í grein í sama blaði. Segir hann vandséð hví svo ætti að vera. Fráleitt er að gefa í skyn að íslensk orkufyrirtæki gætu selt á mun hærri verðum en kjósi einfaldlega að selja á lægri verðum, segir m.a. í grein Gústafs.
Lesa meira...
04.02.2009
Aðalfundur Samorku 20. febrúar
Aðalfundur Samorku verður haldinn föstudaginn 20. febrúar, á Grand Hótel Reykjavík. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 10:00, en dagskrá opin boðsgestum hefst kl. 12:00.
Lesa meira...
15.01.2009
Af fjárfestingarsamningum og sprotastuðningi
Furðu sætir hins vegar að oft eru það áköfustu talsmenn sprotastuðningsins sem hæst hafa gegn fjárfestingarsamningunum. Fólk getur auðvitað haft einhverjar ástæður fyrir að vera einhvern veginn mótfallið tilteknum atvinnugreinum. En það er ekki trúverðugt að klæða þá afstöðu í búning grundvallarandstöðu við að hið opinbera liðki til fyrir fjárfestingum með því að afsala sér litlum hluta gríðarhárra tekna. Ekki ef á sama tíma er mælst til beinna opinberra fjárútláta til annars konar atvinnuuppbyggingar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku, þar sem hann fjallar um ólíkar tegundir opinbers stuðnings við atvinnuuppbyggingu.
Lesa meira...
09.01.2009
Aðalfundur Samorku 20. febrúar
Aðalfundur Samorku verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 20. febrúar. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 10, en opin dagskrá kl. 12. Nánar um þá dagskrá síðar.
Lesa meira...
03.12.2008
Rafmagnið ódýrast á Íslandi
Af höfuðborgum Norðurlandanna er rafmagn til heimilisnota ódýrast í Reykjavík og greiðir dæmigert heimili um kr. 45 þúsund á ári fyrir raforku. Dýrast er rafmagnið í Kaupmannahöfn þar sem dæmigert heimili greiðir um kr. 216 þúsund á ári. Næst Reykjavík er Helsinki, með kr. 51 þúsund, en sé miðað við gengi fyrir bankakreppu var raforkan ódýrust í Helsinki, eða kr. 37 þúsund. Þar er miðað við almenn raforkukaup sem að stærstum hluta til koma frá kola- og kjarnorkuverum. Í Helsinki kostar 15% aukalega að kaupa orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum á borð við þá sem við nýtum alfarið til raforkuframleiðslu hérlendis. Í samanburði Samorku er miðað við gengi 14. nóvember sl., en til viðmiðunar vegna bankakreppunnar er staðan einnig borin saman miðað við gengi 1. júlí sl. Varla þarf að taka fram að samanburðurinn yrði Íslandi enn hagstæðari ef miðað yrði við gengi dagsins í dag, í stað 14. nóvember.
Lesa meira...
25.11.2008
Pétur Kristjánsson leysir Maríu Jónu af, til eins árs
María Jóna Gunnarsdóttir, deildarstjóri frá-, vatns- og hitaveitudeildar Samorku fór í ársleyfi þann 1. nóvember sl., vegna doktorsnáms. Pétur Kristjánsson, rekstrartæknifræðingur, leysir Maríu af á skrifstofu Samorku. Pétur starfaði sem rekstrarstjóri Vatnsveitu Reykjavíkur frá árinu 1983 til ársins 2000 eða þar til vatnsveitan sameinaðist Orkuveitu Reykjavíkur. Þar hélt hann áfram við sömu störf sem deildarstjóri Dreifingar OR með umsjón og ábyrgð á dreifikerfi kalda vatnsins. Þann 1. júlí 2003 tók Pétur við starfi deildarstjóra Innkaupastjórnunar OR og kemur úr því starfi til að leysa Maríu af. Pétur hefur komið að starfi Samorku í gegnum árin. Hann hefur verið fulltrúi í nefndum, starfað að starfsnámi í jarðlagnatækni, skrifað kafla í Vatnsveituhandbók Samorku og haldið fyrirlestra á námskeiðum og ráðstefnum Samorku, hér heima og erlendis. Samorka býður Pétur velkominn til starfa, jafnframt því sem Maríu Jónu er óskað velgengni í sínu námi.
Lesa meira...
31.10.2008
Niðurgreidd raforka til garðyrkjubænda
Garðyrkjubændur eru góðir viðskiptavinir raforkufyrirtækja og auðvitað myndu þeir gjarnan vilja fá enn lægri verð. Öll myndum við gjarnan vilja fá lægri verð í okkar innkaupum. Garðyrkjubændur hér á landi greiða raunar miklum mun lægra raforkuverð en keppinautar þeirra í nágrannalöndunum gera, og þarf ekki fyrrnefndar niðurgreiðslur til. Hins vegar eru engar viðskiptalegar forsendur fyrir því að bera saman raforkuverð til garðyrkjubænda annars vegar og til stóriðju hins vegar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku. Þar fjallar hann um þá útbreiddu skoðun að rétt væri að garðyrkjubændur fengju raforku á sama verði og stóriðjufyrirtæki greiða, en tillaga um það er í raun tillaga um frekari niðurgreiðslur á raforku til einu atvinnugreinarinnar sem nýtur slíkra niðurgreiðslna.
Lesa meira...
24.10.2008
Olíukyndingar saknað?
Áratugum saman hefur hitaveituvæðingin sparað Íslendingum tugi milljarða króna á ári hverju sem ella hefðu getað farið í innflutning á olíu til húshitunar. Vissulega myndum við líklega fremur notast við rafkyndingu að mestu í stað olíu í dag, en sú lausn er mun dýrari en jarðhitaveitan og þá væri jafnframt minna framboð af raforku til annarra nota sem því næmi, til dæmis í iðnaði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku. Þar svarar hann hagfræðiprófessor sem gagnrýndi á sama vettvangi m.a. það sem hann kallaði offjárfestingu í hitaveitum og skyldum rekstri á áttunda áratugnum. Í grein sinni dregur Gústaf í efa að landsmenn sakni olíukyndingarinnar.
Lesa meira...
22.10.2008
Brýnt að nýta tímann vel til að undirbúa framkvæmdir
Í samtali við Viðskiptablaðið segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, að mikilvægt sé að nýta þetta óvissuástand sem nú ríki vel til að undirbúa framkvæmdir. Margir horfi nú til framkvæmda við virkjanir og stóriðju og nokkur slík verkefni séu þegar í undirbúningi. Gústaf fjallar í viðtalinu um mikilvægi þess að stofnanir og sveitarfélög vinni með fyrirtækjunum að undirbúningi slíkra verkefna, en tekur fram að orkufyrirtækin séu ekki að biðja um neina afslætti af gildandi lögum og reglum á sviði umhverfismála. Hins vegar segir hann lagaumgjörð slíkra framkvæmda mjög flókna og að mikilvægt sé að einfalda hana, þótt það sé ekki verkefnið nú til skemmri tíma litið.
Lesa meira...
10.10.2008
ESB: Kjarnorkan inn úr kuldanum
Forgangsröðunin breytist hratt á tímum alþjóðlegrar fjármálakreppu, segir formaður umhverfisnefndar Evrópuþingsins. Hann segir erfiðara en áður að leggja áherslu á kostnaðarsamar aðgerðir á sviði loftslagsmála, svo dæmi sé tekið. Forseti framkvæmdastjórnar ESB tekur undir, en varar þó við þessari umræðu, þar sem loftslagsmálin geti orðið margfalt kostnaðarsamara viðfangsefni en núverandi fjármálakreppa. Enginn vilji sé þó fyrir því að setja einhliða svo stífar reglur að ESB flytji út losun gróðurhúsalofttegunda en flytji inn atvinnuleysi. Hann segir ljóst að kjarnorkan geti gegnt mikilvægu hlutverki í viðleitni ESB til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, en talsmenn kjarnorkuiðnaðarins hafa lengi kvartað undan því að þeirra hlutur njóti ekki sannmælis í umræðum um orku- og loftslagsmál á vettvangi ESB.
Lesa meira...
02.10.2008
Nordic Climate Solutions ráðstefna og sölusýning í Kaupmannahöfn 25-26. nóvember
Dagana 25. og 26. nóvember stendur norræna ráðherranefndin fyrir ráðstefnu og sölusýningu þar sem fjallað verður um markaðslausnir vegna hlýnunar loftslags. Kynntar verða lausnir í orkumálum, fjallað um áhrif á stjórnun, fjallað um ólíka markaði o.s.frv., en þátttakendur koma víðs vegar að úr heiminum. Samorka er í hópi fjölda samstarfsaðila ráðstefnunnar og geta félagsmenn Samorku nálgast boðsmiða á skrifstofu samtakanna (ath., mjög takmarkað upplag) og þannig fengið fellt niður ráðstefnugjaldið sem nemur 450 evrum.
Lesa meira...
01.10.2008
Af þekkingargreinum í atvinnulífi
Allar atvinnugreinar eru þekkingargreinar í einhverjum skilningi. Vissulega er meiri fjármunum varið í rannsóknir og þróun í sumum greinum eða að minnsta kosti í sumum fyrirtækjum en í öðrum. Og vissulega er menntunarstig hærra í sumum fyrirtækjum en víða annar staðar, þegar horft er til formlegrar menntunar. En alls staðar er samt byggt á uppsafnaðri þekkingu og ástæðulaust að nota þetta hugtak yfir fáar útvaldar greinar í almennri umræðu um atvinnumál, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í Viðskiptablaðinu.
Lesa meira...
26.09.2008
Hvernig á að lesa efnagreiningar á neysluvatni
Nýr kafli í Vatnsveituhandbók Samorku er kominn á vefsíðuna. Það eru leiðbeiningar um hvernig lesa á niðurstöður efnagreininga á neysluvatni.
Lesa meira...
25.09.2008
Heita silfrið Hitaveita á Íslandi í 100 ár
Samorka hefur gefið út blað í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi. Heita silfrið heitir blaðið og er því dreift með Morgunblaðinu í dag, 25. september. Í blaðinu er fjallað um sögu hitaveitu á Íslandi, rætt við fjölda fólks um þau auknu lífsgæði sem hitaveitunni fylgja, fjallað um sögu jarðhitanýtingar á Íslandi, þróun þekkingar á þessu sviði, ungbarnasund, ferðaþjónustu, jarðhitaleit og margt fleira. Blaðið má nálgast hér á vef Samorku, en einnig er hér prentað upphafsávarp Franz Árnasonar, formanns Samorku, í blaðinu - Bætt heilsufar og almenn lífsgæði.
Lesa meira...
12.09.2008
Samorka og úrskurður umhverfisráðherra
Samorka gerir hins vegar athugasemdir við að orkufyrirtækin fái ekki að framfylgja þeirri yfirlýstu stefnu sinni að rannsaka og undirbúa virkjanir og háspennulínur óháð því hver kemur á endanum til með að kaupa orkuna. Engan veginn er sjálfgefið að tengja fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir á Norðausturlandi við áætlanir um byggingu álvers á Bakka. Þá aðskilja tugir kílómetra umrædd framkvæmdasvæði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svargrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku, til umhverfisráðherra í Morgunblaðinu.
Lesa meira...
09.09.2008
Ráðstefna um orkugjafa framtíðar í samgöngum, 18.-19. september á Hilton Nordica
Dagana 18. og 19. september heldur Framtíðarorka ráðstefnuna Driving Sustainability öðru sinni í Reykjavík, á Hilton Hótel Nordica. Á ráðstefnunni munu m.a. fulltrúar bílaframleiðendanna Toyota, Ford og Mitsubishi veita innsýn í tæknilausnir sem miða að sjálfbærum samgöngum og standa munu neytendum til boða á næstu árum. Stærstu orkufyrirtæki Norðurlanda, Vattenfall í Svíþjóð og Dong Energy í Danmörku, munu skýra ráðstefnugestum frá áætlunum sínum um rafmagnsvæðingu í samgöngum.
Lesa meira...
04.09.2008
Ályktun stjórnar Samorku vegna úrskurðar umhverfisráðherra
Stjórn Samorku hefur samþykkt ályktun vegna úrskurðar umhverfisráðherra um sameiginlegt umhverfismat vegna virkjana, háspennulína og álvers á Norðausturlandi. Stjórnin skorar á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína til að lágmarka þann skaða sem að óbreyttu gæti hlotist af úrskurðinum. Náist ekki ásættanleg niðurstaða í þeim efnum telur stjórn Samorku nauðsynlegt, með hliðsjón af alvarleika málsins, að dómstólar verði látnir skera úr um lögmæti úrskurðar ráðherra, vegna framtíðarhagsmuna orkuiðnaðarins. Fram kemur í ályktuninni að standi úrskurðurinn óhaggaður, og falli rannsóknarboranir undir hann, muni það hafa verulegar tafir í för með sér við undirbúning verkefna á Norðausturlandi, um sem nemur a.m.k. einu ári, og valda orkufyrirtækjunum og sveitarfélögunum aukakostnaði er nemur hundruðum milljóna króna.
Lesa meira...
02.09.2008
100 ára afmælisdagskrá á alþjóðlegri ráðstefnu um hitaveitur
Þriðjudaginn 2. september stóð Samorka fyrir dagskrá í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, innan ramma alþjóðlegu ráðstefnunnar 11th International Symposium on District Heating and Cooling. Háskóli Íslands skipulagði ráðstefnuna í samstarfi við Samorku og Nordic Energy Research, og var hún haldin á Háskólatorgi dagana 1.-2. september. Erindin úr dagskránni má nálgast hér á vef Samorku.
Lesa meira...
21.08.2008
Afmælisdagskrá hitaveitu á alþjóðlegri ráðstefnu, þriðjudaginn 2. september
Samorka skipuleggur sérstaka afmælisdagskrá í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, á alþjóðlegu ráðstefnunni 11th International Symposium on Central Heating and Cooling í Reykjavík. Ráðstefnan stendur yfir dagana 31. ágúst til 2. september, en afmælisdagskrá verður þriðjudaginn 2. september kl. 13:20 15:00. Ráðstefnan fer öll fram á ensku og ráðstefnugjald er kr. 55.000, en ókeypis er inn á afmælisdagskránna og allir velkomnir.
Lesa meira...
24.07.2008
Alþjóðleg ráðstefna um hitaveitur, Reykjavík, 1.-2. september
Mánudaginn 1. og þriðjudaginn 2. september nk. verður haldin alþjóðleg ráðstefna um hitaveitur í Reykjavík. Nánar til tekið er um að ræða 11th International Symposium on District Heating and Cooling, sem Háskóli Íslands heldur í samstarfi við Nordic Energy Research og Samorku. Fundirnir verða haldnir á háskólatorgi HÍ. Þátttakendur verða hátt á annað hundrað og fyrirlesarar koma víðs vegar að úr heiminum. Í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi í ár skipuleggur Samorka sérstaka dagskrá um hitaveitur og nýtingu jarðhita á Íslandi, eftir hádegi þriðjudaginn 2. september.
Lesa meira...
22.07.2008
Gert út á gúrkuna
Auðvitað er allt gott um það að segja ef fólk kýs að eyða sínum frítíma í að mótmæla framkvæmdum sem því hugnast jafn illa og raun ber vitni. Sá réttur er mikilvægur hluti af okkar samfélagsskipan. Hið sama gildir hins vegar um eignarréttinn og um lög og reglu almennt. Fólk getur valið að sýna því umburðarlyndi ef aðrir tjá skoðanir sínar með því að hefta för þess eða skemma eigur þess, en væntanlega kæra sig nú fæstir um mikið af slíku. Engin atvinnustarfsemi á að þurfa að þola uppákomur sem ógna jafnvel öryggi á vinnustöðum og hafa umtalsverðan kostnað í för með sér, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í 24 stundum.
Lesa meira...
14.07.2008
Ha, umhverfissinnar?
Hér skal ekki gert lítið úr þeim sjónarmiðum að sumum náttúrusvæðum beri eins og hægt er að hlýfa við hvers kyns ágangi mannsins. Hins vegar virðist sem sumt af því fólki sem talar í nafni umhverfisins vilji ekki heimila neinar virkjanaframkvæmdir neins staðar, að minnsta kosti ekki í þágu iðnaðar. Sama fólk talar síðan iðulega um loftslagsmál og gagnrýnir að hér séu reist iðjuver sem menga andrúmsloftið, þótt ljóst sé að mengunin yrði átta eða níu sinnum meiri ef notuð væri orka frá kolaorkuverum erlendis. Þetta fólk notar síðan auðvitað öll sömu tól og tæki og við hin, framleidd úr afurðum sömu iðjuveranna og það gagnrýnir, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í Morgunblaðinu.
Lesa meira...
09.07.2008
Raforka í samgöngum-tengiltvinnbílar
Á nýafstöðnum ársfundi evrópsku rafveitusamtakanna Eurelectric, var m.a. fjallað um rafvæðingu í framtíðinni og sjálfbæra raforkumarkaði. Markmið ESB í orkumálum voru fyrirferðamikil og þá einkum útblástur gróðurhúsalofttegunda, skattlagning orku sem gefur frá sér mengandi lofttegundir og viðskipti með losunarkvóta. Orka í samgöngum var töluvert fyrirferðamikil og var nokkur samhljómur í umfjölluninni þess efnis að sú þróun sem orðið hefði á ökutækjum og búnaði þeirra á seinustu árum kallaði á spurningar hvaða og hvenær en ekki hvort eitthvað kæmi í stað jarðefnaeldsneytis.
Lesa meira...
03.07.2008
Hjörleifur B. Kvaran nýr í stjórn Samorku, Tryggvi Þór Haraldsson nýr varaformaður
Á sérstökum auka-aðalfundi Samorku var Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kjörinn nýr meðstjórnandi í stað Guðmundar Þóroddssonar sem nýlega sagði sig frá stjórnarsetu. Þá var Guðmundur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella, kjörinn nýr varamaður í stjórn í stað Hreins Hjartarsonar sem nýlega sagði sig frá setu sem varamaður í stjórn samtakanna. Á stjórnarfundi í kjölfarið var Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik, kjörinn varaformaður en Guðmundur Þóroddsson hafði gegnt því embætti. Tryggvi gegndi áður embætti ritara stjórnar og tók Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, við því. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja gegnir áfram embætti gjaldkera og Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, gegnir áfram embætti formanns, en til þess embættis er kosið beint á aðalfundi.
Lesa meira...
02.07.2008
Tækniskólinn hefur starfsemi
Fjöltækniskóli Íslands og Iðnskólinn í Reykjavík hafa verið sameinaðir í Tækniskólann ehf. Nýtt nafn skólans er Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins og er hann stærsti framhaldsskóli landsins. Gert er ráð fyrir að um 1.800 nemendur stundi nám í dagsskóla á haustönn. Innritun í nýja skólann hefur gengið vel og hafa fleiri umsóknir borist í skólann en samanlagt í Iðnskólann í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands seinustu ár. Tækniskólinn er einkarekinn og er rekstrarfélagið í eigu Samtaka iðnaðarins, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samorku, Samtaka íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík.
Lesa meira...
28.06.2008
Óttast upphrópanir og firru
Að sjálfsögðu er það hið besta mál að halda tónleika til stuðnings náttúrunni. Ísland hefur jú mjög græna ímynd, því við erum land hreinu orkunnar, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, í samtali við Morgunblaðið vegna svokallaðra Náttúrutónleika. Tekur hann fram að hann óttist engu að síður að umræðan um virkjanir og náttúruvernd verði of einsleit og uppfull af upphrópunum. Það er stundum tilhneiging til þess að velmeinandi baráttufólk fyrir umhverfismálum grípi til frasa sem ekki eigi við rök að styðjast, segir Gústaf og nefnir sem dæmi um slíkar upphrópanir þá firru að bráðum verði búið að virkja allt Ísland, að raforka til stóriðju sé niðurgreidd og að álfyrirtæki séu hergagnaframleiðendur.
Lesa meira...
24.06.2008
Einkennileg skrif Framtíðarlandsins
Framtíðarlandið sendi á dögunum frá sér ritgerð þar sem fjallað er um meinta ríkisstyrki við stóriðju á Íslandi. Ritgerðin er um margt býsna merkileg, en þar er því til dæmis haldið fram að jákvæð áhrif fullbúinna álvera á viðskiptajöfnuð virðist takmörkuð og tímabundin. Útflutningur vaxi að magni til fyrst eftir að álverksmiðja taki til starfa en haldist síðan lítið breyttur. Þetta er afar merkileg niðurstaða og samkvæmt henni skiptir þessi stöðugi útflutningur þá litlu máli fyrir viðskiptajöfnuðinn nema rétt meðan um aukningu er að ræða.
Lesa meira...
23.06.2008
Nýr forseti Eurelectric: Lars G. Josefsson
Lars G. Josefsson, forstjóri sænska orkufyrirtækisins Vattenfall, var á dögunum kjörinn forseti Eurelectric, Evrópusamtaka rafiðnaðarins, til þriggja ára. Hann tekur við af Spánverjanum Rafael Miranda, forstjóra spænska orkufyrirtækisins Endesa. Josefsson gegndi áður embætti varaforseta Eurelectric en við því embætti hefur nú tekið Fulvio Conti, forstjóri ítalska orkufyrirtækisins ENEL.
Lesa meira...
19.06.2008
Neytendastofa vekur athygli á reglugerð um raforkuvirki
Reglugerð um raforkuvirki nr. 264/1971 hefur þjónað sem grundvallarrit um allt er varðar hönnun á, vinnu við og frágang á raforkuvirkjum. Nú hefur staðallinn ÍST 200:2006 tekið gildi fyrir virki í byggingum og aðrir staðlar hafa tekið gildi fyrir háspennuvirki.
Það er mikilvægt að allir rafiðnaðarmenn kynni sér þessar breytingar.
Lesa meira...
16.06.2008
Sveigjanleikaákvæði Kyoto-bókunarinnar: möguleikar fyrir jarðhitafyrirtæki
Iðnríkin sem tóku á sig skuldbindingar um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2008-2012 geta með verkefnum í þróunarríkjunum aflað sér heimilda til útstreymis sem nýtast heima fyrir. Verkefnin sem ráðist er í verða að draga úr útstreymi í þróunarríkjunum frá því sem ella hefði orðið og uppfylla skilyrði sem almennt eru sett til viðurkenningar verkefnanna. Töluverðir möguleikar eiga að geta falist í því fyrir íslensk jarðhitafyrirtæki að huga að þessum möguleikum þegar undirbúin eru verkefni í þróunarríkjunum, segir á vef Samtaka atvinnulífsins.
Lesa meira...
02.06.2008
Erindi fjölsótts og vel heppnaðs Vorfundar á vef Samorku
Vorfundur Samorku var haldinn á Akureyri í fimmta sinn dagana 22. og 23. maí 2008. Fundurinn heppnaðist vel í alla staði en fundinn sátu á fjórða hundrað manns og alls voru flutt þar 44 erindi. Fjallað var um laga- og regluumhverfi, virkjanir, jarðhitaleit, flutningskerfi, grenndarálestur mæla, öryggismál, rafmagn í samgöngum, hreinsistöðvar, orkuútrásina, fræðslumál, eftirlitsmál, lagnaval, heilbrigðismál, umhverfismál, minjamál og margt fleira. Í tengslum við fundinn sýndu 23 fyrirtæki vörur sínar og þjónustu á fundarstað. Erindi fundarins má nálgast hér á vef Samorku.
Lesa meira...
29.05.2008
Hitaveita í 100 ár: Útilistaverk vígt í Mosfellsbæ laugardaginn 31. maí
Laugardaginn 31. maí verður vígt nýtt útilistaverk í Mosfellsbæ, sem Samorka reisir í samvinnu við bæinn í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, og 20 ára afmæli Mosfellsbæjar. Jafnframt verður vígt nýtt torg við Þverholt, en verkið er hluti af torginu, ásamt með nýju fræðsluskilti sem OR reisir í samstarfi við Mosfellsbæ í tengslum við varðveislu á gömlum hitaveitustokk við torgið.
Lesa meira...
29.05.2008
Reglugerð lögum framar?
Ef stjórnvald tekur sér vald, með vísan til reglugerðar, sem ekki er að finna í lögum um sama efni eins og Skipulagsstofnun gerir, þá krefst það nánari skýringa, segir m.a. í yfirlýsingu frá Samorku vegna svars Skipulagsstofnunar við umfjöllun samtakanna um álit stofnunarinnar á mati á umhverfisáhrifum Bitruvirkjunar. Yfirlýsingin er birt í Morgunblaðinu.
Lesa meira...
26.05.2008
Vandséð annað en Skipulagsstofnun hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt
Á dögunum skilaði Skipulagsstofnun áliti á mati á umhverfisáhrifum vegna Bitruvirkjunar, þar sem stofnunin staðfestir að matið hafi verið unnið með lögbundnum hætti en kemst jafnframt að þeirri niðurstöðu að bygging Bitruvirkjunar sé ekki ásættanleg vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. Vandséð er annað en að með þessari niðurstöðu sé stofnunin komin út fyrir lögbundið hlutverk sitt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. Lögunum var breytt árið 2005 og í frumvarpinu segir meðal annars, um helstu breytingar á lögunum, að í matsferlinu verði ekki tekin afstaða til þess hvort fallast beri á með eða án skilyrða eða leggjast gegn framkvæmd sem lýst hefur verið með fullnægjandi hætti í matsskýrslu framkvæmdaraðila. Hlutverk Skipulagsstofnunar er fyrst og fremst það, í þessu tilfelli, að staðfesta að umhverfismat hafi verið unnið með lögbundnum hætti, sem hún og gerði sem fyrr segir.
Lesa meira...
24.05.2008
Meiri hagsmunum fórnað fyrir minni?
Hér skal ekki gert lítið úr hugsanlegum hagsmunum ferðaþjónustunnar af lítt röskuðu svæði við Ölkelduháls líkt og nú er, en ljóst er að þessi niðurstaða kann að setja í uppnám áform um verulega uppbyggingu í atvinnulífi í Þorlákshöfn og víðar og má nefna netþjónabú og kísilhreinsun í því sambandi. Stærðargráðan er yfir hundrað milljarðar króna í erlendri fjárfestingu, nokkur hundruð ný og vel launuð störf og fleiri milljarðar ef ekki milljarðatugir í skatttekjur ríkis og sveitarfélaga. Hér má því eðlilega spyrja hvort einmitt sé ekki verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í Morgunblaðsgrein.
Lesa meira...
19.05.2008
VORFUNDUR Samorku 2008 í Íþróttahöllinni á Akureyri
Á fimmtudaginn 22. maí n.k. hefst VORFUNDUR Samorku 2008 á Akureyri og stendur í tvo daga.
Með því að smella á "Lesa meira" má fá allar upplýsingar um dagskrá fundarins og tilhögun.
Lesa meira...
15.05.2008
Heita vatnið: Fyllir fimm þúsund Hallgrímskirkjur
Alls nota Íslendingar um 126 milljónir rúmmetra af jarðhitavatni til húshitunar, baða, snjóbræðslu og svo framvegis á ári hverju, eða sem nemur rúmlega 5.200 fullum Hallgrímskirkjum af jarðhitavatni. Þetta kemur fram í nýjum bæklingi sem Samorka hefur gefið út í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi. Á þessum tímamótum leggja samtökin áherslu á þau bættu lífsgæði sem hitaveitunni fylgja, svo sem heilnæmara andrúmsloft, betur hituð hýbýli og betri tækifæri til útivistar, hreyfingar og félagslífs sem tengja má við okkar ríku sundlaugamenningu og mikinn fjölda snjóbræðslukerfa.
Lesa meira...
08.05.2008
Frímerki í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi
Íslandspóstur hefur gefið út frímerki í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, en í ár er öld liðin frá því að heitu vatni var veitt úr hver til kyndingar á bænum Syðri-Reykjum í Mosfellssveit. Verðgildi frímerkisins er 75 krónur og hönnuður þess er Pétur Baldvinsson, grafískur hönnuður.
Lesa meira...
22.04.2008
Fræðslufundur um innkaup veitufyrirtækja
Innkaupahópur Samorku gengst fyrir fræðslufundi um innkaup veitna. Fundurinn fer fram á Grandhótel Reykjavík 8. maí n.k.Hann hefst kl. 8. 30 með skráningu og léttum morgunverði. Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa með inkaup veitna að gera. Markmiðið er að fræðast um þau lög og þær reglugerðir sem gilda um opinber innkaup, útboðsreglur og skilmála.
Lesa meira...
21.04.2008
Ársfundur Eurelectric í Barcelona, 16.-17. júní
Eurelectric, Evrópusamtök rafiðnaðarins, halda ársfund sinn í Barcelona dagana 16.-17. júní. Á fundinum verður m.a. fjallað um uppbyggingu sameiginlegs raforkumarkaðs ESB, metnaðarfull markmið framkvæmdastjórnar ESB í orku- og loftslagsmálum og um orkunýtingu í nútíð og framtíð. Dagskrá og allar nánari upplýsingar má nálgast á vef Eurelectric.
Lesa meira...
21.04.2008
Aðalfundur Jarðhitafélags Íslands á morgun, þriðjudag
Aðalfundur Jarðhitafélags Íslands verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 22. apríl, í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Fundurinn hefst kl. 15:30. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Guðjón Axel Guðjónsson, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneyti kynna stjórnarfrumvarp um breytingu á lögum á auðlinda- og orkusviði. Boðið verður upp á kaffiveitingar í fundarlok.
Lesa meira...
05.04.2008
Sýning á vinningstillögu úr samkeppni um útilistaverk
Laugardaginn 5. apríl var opnuð sýning í Bókasafni Mosfellsbæjar á vinningstillögu úr samkeppni um útilistaverk sem Samorka og Mosfellsbær munu reisa á nýju torgi við Þverholt. Tilefni samkeppninnar eru 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, sem miðast við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908, og 20 ára afmæli Mosfellsbæjar árið 2007. Vinningstillagan er verkið Hundraðþúsundmiljón tonn af sjóðheitu vatni eftir Kristin E. Hrafnsson myndlistarmann. Er þar í titlinum vísað til orða Halldórs Kiljan Laxness í bókinni Innansveitarkróniku. Einnig eru til sýnis tillögur tveggja annarra listamanna sem forvalsdómnefnd samkeppninnar valdi úr hópi 16 tillagna til frekari þróunar í lokaðri samkeppni.
Lesa meira...
18.03.2008
Framkvæmdir og leikreglur
Bygging álvers í Helguvík á einfaldlega að lúta þeim almennu leikreglum sem öll fyrirtæki lúta með sínar framkvæmdir og fjárfestingar. Umhverfismat, framkvæmdaleyfi, skipulagsmál og hvað það nú allt heitir sem unnið hefur verið að í fjögur ár, í samstarfi við sveitarstjórnir og fleiri aðila. En það er ekki hlutverk stjórnmálamanna eða svonefndra kjaftastétta að fella dóma um þessi áform út frá eigin sjónarmiðum um það hverjum slík störf henti, hversu mikil eftirspurn verði eftir þeim, eða hvort forsvarsmenn umrædds fyrirtækis séu örugglega búnir að reikna dæmið til enda. Ekki frekar en gildir um fjárfestingaráform fyrirtækja í öðrum atvinnugreinum, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í Fréttablaðinu.
Lesa meira...
13.03.2008
Verðmætasköpun í varnarstöðu
Öll atvinnustarfsemi á einfaldlega að njóta sannmælis og lúta þeim lögum og reglum sem í gildi eru hverju sinni. Mörg þúsund Íslendingar hafa sitt lifibrauð með beinum og óbeinum hætti af starfsemi álvera og þúsundir binda vonir við hugmyndir um þess háttar uppbyggingu og verðmætasköpun í sínu héraði. Þetta fólk er nákvæmlega jafn merkilegt og það fólk sem starfar í öðrum atvinnugreinum og á ekki sífellt að þurfa að þola að lítið sé gert úr því í opinberri umræðu, segir m.a. í álitsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku, í 24 stundum. Hann gagnrýnir þar hvernig þeim sem taka jákvætt í uppbyggingu áliðnaðar er sífellt stillt upp við vegg í opinberri umræðu.
Lesa meira...
26.02.2008
ESB um græna orku: verðmætasköpun og aukið orkuöryggi - tækifæri fyrir Ísland
Svonefndur grænn pakki tillagna ESB í orku- og loftslagsmálum er mikilvægur liður í að efla innra orkuöryggi aðildarríkjanna sem mörg eru mjög háð innflutningi orkugjafa, m.a. á gasi frá Rússlandi. Þá bindur framkvæmdastjórn ESB vonir við að aukin eftirspurn eftir nýrri tækni á sviði grænnar orku og bættrar orkunýtingar muni fela í sér viðskiptatækifæri fyrir evrópsk fyrirtæki nái þau forystu á þessum sviðum, og markmiðin í orku- og loftslagsmálum þannig á endanum skapa ný störf og stuðla að hagvexti. Þetta kom fram í máli forystumanna ESB á aðalfundi Evrópusamtaka atvinnulífsins, þar sem fjallað var um grænna hagkerfi. Ísland er auðvitað í allt annarri stöðu, með margfalt hærra hlutfall innlendra endurnýjanlegra orkugjafa. Meðal annars þess vegna geta hins vegar leynst þarna mikil tækifæri fyrir okkur.
Lesa meira...
25.02.2008
Vorfundur Jarðhitafélagsins á föstudag: Vannýtt tækifæri í lághitanýtingu
Föstudaginn 29. febrúar heldur Jarðhitafélag Íslands vorfund sinn og er yfirskriftin að þessu sinni Vannýtt tækifæri í lághitanýtingu. Fundurinn verður haldinn í Orkugarði að Grensásvegi 9 og erindi flytja þau Haukur Jóhannesson jarðfræðingur á ÍSOR, Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri, Halldór Halldórsson formaður Sambands sveitarfélaga, Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð og Guðjón Axel Guðjónsson skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneyti. Ásgeir Margeirsson formaður Jarðhitafélagsins setur fundinn.
Lesa meira...
15.02.2008
Iðnaðarráðherra: Græna orkan verði aðaltrompið í ferðamannaiðnaðinum
Í ræðu sinni á aðalfundi Samorku spáði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra því að græna orkan ætti eftir að reynast okkar aðaltromp í ferðamannaiðnaðinum og sagði Bláa lónið þar aðeins forsmekkinn. Össur færði fundinum árnaðaróskir ríkisstjórnarinnar vegna 100 ára afmælis hitaveitu á Íslandi og fjallaði um útrás orkuþekkingar, eignarhald á orkuauðlindum, breytt viðhorf til vatnsaflsvirkjana á alþjóðavettvangi og margt fleira.
Lesa meira...
15.02.2008
Taka þarf grundvallarákvarðanir fyrr í þessu langa og flókna ferli
Árni Bragason ráðgjafi hjá Línuhönnun flutti erindi um flókna reglubyrði framkvæmda á aðalfundi Samorku. Árni sýndi einfaldaða mynd af því ferli sem fara þarf í gegnum við nýja orkuöflun og er óhætt að segja að sú mynd sé engu að síður æði flókin. Enda hefur komið fram að þess eru dæmi að ein og sama framkvæmdin hafi verið oftar en tuttugu sinnum til umsagnar hjá sama umsagnaraðila í svona ferli. Hann lagði áherslu á að taka þyrfti grundvallarákvarðanir sem fremst í þessu langa og flókna ferli. Í dag væri athyglin öll á málinu þegar unnið væri mat á umhverfisáhrifum virkjunar, en það gæti verið mjög seint í ferlinu. Árni tók Bitruvirkjun sem dæmi en árið 2002 var aðalskipulag auglýst án þess að athugasemdir bærust og var það staðfest árið 2003 - og gert ráð fyrir virkjun á Ölkelduhálsi. Svo væri það ekki fyrr en með mati á umhverfisáhrifum virkjunar árið 2007 sem athugasemdir almennings færu að berast og ágreiningur að kvikna meðal stjórnmálamanna.
Lesa meira...
15.02.2008
Aðalfundur Samorku ályktar um reglubyrði, eignarhaldsumræðuna, jarðstrengi, vanskil ríkissjóðs o.fl.
Skoða þarf leiðir til einföldunar á flóknu laga- og regluumhverfi orku- og veitufyrirtækja, en dæmi eru um að sama framkvæmdin hafi verið oftar en tuttugu sinnum til umfjöllunar hjá sömu umsagnaraðilum. Umræðan um orku- og veitumál einblínir um of á eignarhaldið, efling flutningskerfis raforku er brýnna verkefni en margfalt dýrari framkvæmdir við færslu á loftlínum í jörð, dráttur á greiðslum ríkissjóðs vegna nýrra hitaveitna stefnir að óbreyttu í um150 milljónir króna á árinu og afar mikilvægt er að íslenskar endurnýjanlegar orkulindir njóti áfram sömu viðurkenningar og þær fengu við gerð Kyoto-bókunarinnar við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun aðalfundar Samorku.
Lesa meira...
15.02.2008
Ný stjórn Samorku - Franz Árnason áfram formaður
Aðalfundur Samorku kaus Pál Pálsson Skagafjarðarveitum nýjan í stjórn í stað Ásbjörns Blöndal frá Hitaveitu Suðurnesja (og áður Selfossveitum). Franz Árnason, Norðurorku, gegnir áfram formennsku en hann var kjörinn formaður til tveggja ára á aðalfundi samtakanna 9. febrúar 2007. Ný stjórn á að öðru leyti eftir að skipta með sér verkum.
Lesa meira...
07.02.2008
Álið framúr sjávarafurðum í útflutningsverðmæti
Samkvæmt útreikningum Greiningardeildar Kaupþings má búast við að útflutningsverðmæti áls aukist úr rúmum 80 milljörðum króna í um 135 milljarða á þessu ári og verði komið í um 140 milljarða á árinu 2009. Á sama tíma mun útflutningsverðmæti áls í fyrsta skipti fara fram úr útflutningi á sjávarafurðum á þessu ári, samkvæmt spá greiningardeildarinnar. Þá segir að hagvöxtur næstu ára muni verða drifinn áfram af viðsnúningi í utanríkisviðskiptum, þar sem álútflutningur aukist og innflutningur dragist saman.
Lesa meira...
07.02.2008
Hrein orka: Ísland er með 75%, ESB stefnir á 20%
Evrópusambandið hefur m.a. sett sér markmið um að árið 2020 verði hlutur endurnýjanlegra orkugjafa innan sambandsins orðinn 20% og að fyrir sama tíma hafi náðst 20% samdráttur á losun gróðurhúsalofttegunda. Í grein í 24 stundum bendir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, á að sjaldan sé fjallað um þessi markmið í samhengi hérlendis. Á Íslandi sé hlutur endurnýjanlegra orkugjafa nú um 75% og verði orðinn 80% síðar á þessu ári. Þá sé víðast hvar innan ESB horft til breytinga á sviði orkuframleiðslu í því skyni að ná fram samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda, en Ísland geti ekki flutt þá umræðu inn hráa enda forskot okkar gríðarlegt og hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa þegar afar hátt.
Lesa meira...
06.02.2008
Franz kjörinn formaður Nordvarme
Franz Árnason, forstjóri Norðurorku hf. og formaður stjórnar Samorku, var á dögunum kjörinn formaður Nordvarme til næstu tveggja ára. Jafnframt mun Samorka hafa veg og vanda af skrifstofuhaldi samtakanna á sama tíma. Nordvarme er samstarfsvettvangur Norðurlandanna í málefnum hitaveitu, þar sem meðal annars er fjallað um rannsóknir og þróun, gæðamál, öryggismál, þróun Evrópuregluverks og fleira.
Lesa meira...
30.01.2008
Merki 100 ára afmælis hitaveitu á Íslandi
Hannað hefur verið merki eitt hundrað ára afmælis hitaveitu á Íslandi. Höfundur merkisins er Hlynur Ólafsson, grafískur hönnuður. Merkið sýnir á táknrænan hátt þau bættu lífsgæði sem fólgin eru í hitaveituvæðingu á Íslandi. Samorka heldur í samstarfi við hitaveitur í landinu upp á 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi á þessu ári. Verður þessara tímamóta m.a. minnst með gerð heimildamyndar fyrir sjónvarp, gerð útilistaverks í Mosfellsbæ og samantekt frá Háskólanum á Akureyri um heilsufarsáhrif heitavatnsnotkunar.
Lesa meira...
29.01.2008
Eurelectric vilja opnari markað fyrir græn vottorð innan ESB íslensk raforkufyrirtæki gætu hagnast á slíkri breytingu
Eurelectric, Evrópusamtök rafiðnaðarins, telja að áform ESB um stóraukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa muni að óbreyttu draga úr samkeppnishæfni atvinnulífs innan ESB. Samtökin telja mikilvægt að opna betur fyrir viðskipti með svokölluð græn vottorð um endurnýjanlega orku. Helst myndu samtökin vilja að raforkuframleiðendur og seljendur í ríkjum eins og Íslandi hefðu mun greiðari aðgang að þeim markaði. Ljóst er að íslensk fyrirtæki gætu hagnast á slíkri breytingu.
Lesa meira...
21.01.2008
Hátíð í Hafnarfirði
Það er ekki á hverjum degi sem ný vatnsaflsvirkjun er tekin í notkun.
Föstudaginn 17. janúar s.l. var Reykdalsvirkjun, hin nýja, formlega gangsett.
Það er forsaga þessa atburðar að þegar Samorka minntist 100 ára rafvæðingar á Íslandi, þá var ákveðið að færa Hafnfirðingum að gjöf túrbínu og rafala af sömu stærð og vélar Jóhannesar Reykdals voru í upphafi.
Lesa meira...
10.01.2008
SA: Hagsmunir Íslands í loftslagsmálum verði tryggðir
Við gerð nýs alþjóðlegs samkomulags um loftslagsmál hljóta íslensk stjórnvöld að leggja áherslu á sérstöðu Íslands og þann árangur sem náðst hefur í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, segir í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins. Endurnýjað íslenskt ákvæði verður að tryggja að hægt verði að ráðast í þau verkefni sem þegar eru áætlanir um og að hægt verði að halda áfram uppbyggingu hér á landi á þeim tíma sem nýju samkomulagi er ætlað að vara. Þannig tryggja stjórnvöld hagsmuni íslensks atvinnulífs og um leið þjóðarinnar í bráð og lengd.
Lesa meira...
14.12.2007
John Snow Senat stofnað
Stofnað hefur verið John Snow Senat. Megin markmið þess er að vekja athygli á mikilvægi vatnsmála og þörf á þverfaglegri nálgun til að tryggja heilnæmi neysluvatns. Óformlegur félagskapur John Snow sem er deild í alþjóðlega John Snow Society hefur verið starfandi hér á landi síðan 2000.
Lesa meira...
03.12.2007
Hitaveita í 100 ár: Fjöldi tillagna að útilistaverki Samorku og Mosfellsbæjar
Sextán tillögur bárust að útilistaverki sem Samorka og Mosfellsbær hyggjast láta reisa á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ. Tilefni samkeppninnar eru 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, sem miðast við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908, og 20 ára afmæli Mosfellsbæjar árið 2007.
Lesa meira...
27.11.2007
Ásgeir Sæmundsson stöðvarstjóri
Ásgeir Sæmundsson fyrverandi stöðvarstjóri í Andakílsárvirkjun er látinn.
Hann var fæddur 1923 og lést á Landsspítala Íslands mánudaginn 26. nóvember.
Ásgeir var rafvélavirkji og rafmagnstæknifræðingur. Hann lærði iðn sína hjá Bræðrunum Ormsson og tæknifræði í Tekniske Institute í Stokkhólmi.
Hann vann að rafveitumálum og rafvæðingu landsins um langt skeið og var m.a. stöðvarstjóri Andakílsárvirkjunar. Samorka minnist áhugasams og tillögugóðs félaga um leið og hún vottar aðstendendum fyllstu samúðar.
03.11.2007
Ný tegund gagnrýni: farið að lögum
Nú er komin fram ný tegund af gagnrýni á hendur einu fyrirtæki vegna virkjanaframkæmda, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, í grein í Morgunblaðinu. Í fjölmiðlum, meðal annars á forsíðu Morgunblaðsins, var það gert tortryggilegt að umrætt fyrirtæki skyldi sjálft hafa látið vinna umhverfismat vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Þetta er afar athyglisverð gagnrýni, því óvart er mælt fyrir um það í lögum um mat á umhverfisáhrifum að framkvæmdaraðili láti vinna slíkt mat. Matsferlið er hins vegar langt og að því koma ýmsir umsagnaraðilar auk að sjálfsögðu skipulagsyfirvalda, og ekki skal farið nánar út í það hér. En varla getur það talist eðlilegt að fyrirtækið sé gert tortryggilegt fyrir að fara eftir þeim lagabókstaf sem við á.
Lesa meira...
26.10.2007
Samkeppni um útilistaverk í Mosfellsbæ - hitaveita í 100 ár
Samorka og Mosfellsbær auglýsa í sameiningu eftir þátttakendum í forvali fyrir lokaða samkeppni um gerð útilistaverks sem rísa á í maí 2008á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ. Tilefnið er 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi árið 2008, þar sem miðað er við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni standa að gerð útilistaverks í bænum. Ákveðið hefur verið að auglýsa eftir þátttakendum í forvali en að í kjölfarið fari fram lokuð samkeppni þriggja listamanna sem forvalsdómnefnd velur úr þátttakendum í forvali.
Lesa meira...
23.10.2007
Námskeið um innra eftirlit vatnsveitna
Föstudaginn 19. okt. sl. var haldið námskeið um innra eftilit og hreinlæti hjá vatnsveitum. Áherslan var á hvernig standa ætti að kerfisbundnu fyrirbyggjandi eftirliti til að tryggja gæði neysluvatns. Íslenskar vatnsveitur hafa staðis sig vel í að setja upp gæðakerfi í vatnsveitum og nú búa um 77% íbúa landsins við það að fá vatn frá vatnsveitu sem hefur slíkt fyrirbyggjandi eftirlit.
Lesa meira...
05.10.2007
Alþjóða jarðhitasamfélagið þingar á Íslandi - aðalfundur IGA og haustþing JHFÍ
Jarðhitafélag Íslands heldur haustfund sinn þriðjudaginn 9. október um alþjóðlega þróun og horfur á sviði jarðhitanýtingar. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mun opna fundinn en í kjölfarið mun fjöldi erlendra og innlendra sérfræðinga flytja erindi um þróun og horfur á þessu sviði. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 og hefst kl. 8:45. Fundurinn verður á ensku og er hann haldinn í tengslum við aðal- og stjórnarfund Alþjóða jarðhitafélagsins (International Geothermal Association IGA) hér á landi dagana 10. og 11. október.
Lesa meira...
28.09.2007
Rafveituvirkjanám
Rafveituvirkjanám er nú hafið við Iðnskólann í Reykjavík.
Til náms eru skráðir 20 nemendur.
Kennslan fer fram í lotum, þannig að einungis er kennt eitt fag í hverri lotu. Á þann hátt er komið til móts við nemendur sem eru í fastri vinnu.
Ekki hefur nein kennsla í þessari löggiltu iðngrein farið fram á undanförnum árum. Hér er því virkilega verið að koma til móts við þarfir atvinnulífsins, sérstaklega raforkufyrirtækjanna.
21.09.2007
Samningur um ljósastaura- útboð á ljósaperum
Þriðjudagurinn 18. september var annasamur dagur hjá innkaupanefnd Samorku. Þann dag fór fram formleg undirritun á samningi Samorku við Sandblástur og Málmhúðun ehf. um kaup á ljósastaurum fyrir rafveiturnar. Samdægurs voru opnuð tilboð í útboð Samorku á ljósaperum fyrir sömu aðila.
Lesa meira...
18.09.2007
Vatnsmæling í grennd - Samorka styður þátttöku skólabarna í alþjóðlegu verkefni
Skólaverkefni þar sem börn í 6. og 7. bekk mæla gæði vatnsins í sínu nágrenni verður unnið á tímabilinu 18. september til 18. október. Þetta er gert að alþjóðlegri fyrirmynd - World Monitoring Day. Mælt er uppleyst súrefni, sýrustig, grugg og hitastig. Allir þessir þættir vísa á heilnæmi vatnsins fyrir lífríkið, en verkefninu er ætlað að efla vitund um mikilvægi góðrar umgengni við vatnið, hvað mengi vatnið og hvernig megi draga úr mengun vatns. Um leið vilja Samorka og vatnsveiturnar vekja athygli á heilnæmi íslenska vatnsins og virkja rannsóknaráhugann og vísindamanninn í íslenskum skólabörnum. Sex grunnskólar taka þátt í verkefninu.
Lesa meira...
05.09.2007
Miklar fjárfestingar framundan í orkukerfum jarðar
Halldór Þorgeirsson, forstöðumaður hjá skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Bonn, fjallaði um atvinnulíf og loftslagssamninga á fundi Samtaka atvinnulífsins. Halldór kom víða við í fyrirlestri sínum og fjallaði um kolefnismarkaði, stöðuna í alþjóðaviðræðum, hvað taki við eftir 2012 og svo framtíðarsýn um hvernig verði dregið úr útstreymi til lengri tíma. Halldór lagði áherslu á að loftslagsvandinn yrði leystur af atvinnulífi með nýrri tækni, rannsóknum og því að efnahagslegir hvatar leiði til hagkvæmra lausna. Hann sagði mikilvægt að alþjóðasamningar skapi ramma til langs tíma sem bæði hvetji til fjárfestinga í nýrri tækni og gefi þróunarríkjum tækifæri til þátttöku. Þá sagði Halldór miklar fjárfestingar framundan í orkukerfum jarðar.
Lesa meira...
20.08.2007
Samorkuútboð á ljósaperum
Samorka býður út, fyrir hönd flestra rafveitna í landinu, innkaup á ljósaperum.
Um er að ræða ýmsar gerðir af perum, þó mest perur fyrir götulýsingu. Útboðið fer fram á evrópska efnahagssvæðinu og er útboðslýsingin á ensku.
Lesa meira...
20.08.2007
Nám í rafveituvirkjun
Iðnskólinn í Reykjavík og Samorka hafa gert samkomulag um að í haust fari fram kennsla í rafveituvirkjun. Það er Iðnskólinn sem skipuleggur námið, sér um innritun og ábyrgist að námið sé samkvæmt námsskrá og kröfum. Samorka sér um að útvega kennsluefni og kennara úr sérfræðingahópi raforkufyrirtækjanna.
Lesa meira...
27.07.2007
Vopnasalar borða líka fisk - Fréttablaðsgrein eftir Gústaf Adolf Skúlason
Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, gagnrýnir umræðu um álver og vopnaframleiðslu í grein í Fréttablaðinu. Hann spyr meðal annars: Ætli sovéskir hershöfðingjar hafi jafnvel sporðrennt íslenskri saltsíld áður en haldið var með skriðdrekana inn í Búdapest eða Prag? Hver er þá samviska fólksins sem saltaði hér síldina niður í tunnur? Hvað ef jafnvel vopnaframleiðendur, til dæmis í Svíþjóð, borða fisk? Getum við þá verið að veiða hann og selja þangað út?
Lesa meira...
29.06.2007
Íbúafundir og utanaðkomandi aðilar
Að undanförnu hafa verið haldnir nokkrir íbúafundir um skipulagsmál í sveitarfélögum sem liggja að fyrirhuguðum virkjunum í Þjórsá. Af myndum og fréttum að dæma virðist hins vegar sem háværasta fólkið á þessum fundum séu óvart ekki íbúar viðkomandi sveitarfélaga. Fulltrúar ýmissa samtaka sem kenna sig við náttúruvernd virðast stunda að skipuleggja leiðangra á þessa fundi, leggja þar jafnvel fram ályktanir sínar og hafa sig þar mikið í frammi, enda athygli fjölmiðla tryggð, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í Morgunblaðinu.
Lesa meira...
28.06.2007
Samningur um kaup á ljósastaurum
Á fundi innkaupanefndar Samorku ,var í dag, 28. júní ákveðið að ganga til samninga við Sandblástur og Málmhúðun ehf á Akureyri um innkaup á ljósastaurum fyrir dreifiveitur Samorku.
Myndin er tekin þegar samkomulagið var handsalað.
19.06.2007
Evrópa: Miklar áskoranir á sviði raforku
Öruggt framboð á raforku, samdráttur í losun koltvísýrings og aukin samtvinnun markaða yfir landamæri, samhliða sívaxandi eftirspurn eftir raforku. Þetta eru mikilvæg verkefni sem Evrópuríkin standa frammi fyrir á sviði raforkumála og þetta voru jafnframt helstu umræðuefni ársfundar Eurelectric, Evrópusamtaka rafiðnaðarins, í Antwerpen á dögunum, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í Morgunblaðinu. Hann segir mörg Evrópuríki standa þarna frammi fyrir miklum áskorunum, en að þau geti einungis látið sig dreyma um þá sterku stöðu sem við Íslendingar njótum.
Lesa meira...
15.06.2007
Hans ten Berge nýr framkvæmdastjóri Eurelectric
Á ársfundi Eurelectric, Evrópusamtaka rafiðnaðarins, í Antwerpen á dögunum tók Hans ten Berge við starfi framkvæmdastjóra af Paul Bulteel, sem gegnt hafði starfi framkvæmdastjóra í áratug. Rafael Miranda, forseti Eurelectric, bauð ten Berge velkominn á fundinum og óskaði honum velgengni í starfi. Jafnframt þakkaði hann fráfarandi framkvæmdastjóra mikið og gott starf í þágu samtakanna og ekki síst fyrir að hafa tryggt Eurelectric lykilstöðu sem samráðsaðila stofnana Evrópusambandsins á sviði raforkumála.
Lesa meira...
08.06.2007
Trúnaður um raforkuverð til stóriðju
Þótt orkufyrirtækin séu að mestu í opinberri eigu eru þau engu að síður rekin á samkeppnisgrunni og starfa á samkeppnismarkaði. Stefnan um trúnað í þessu samhengi þjónar best hagsmunum orkufyrirtækja og eigenda þeirra í samningaviðræðum við erlenda raforkukaupendur, þótt draga megi ályktanir um orkuverðið út frá þekktum stærðum segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, m.a. í grein í Fréttablaðinu um trúnað um raforkuverð til stóriðju. Hann bendir m.a. á að fjölmörg íslensk fyrirtæki eru með raforkusamninga sem trúnaður ríkir um og að arðsemin sé það sem máli skipti fyrir eigendur orkufyrirtækjanna.
Lesa meira...
06.06.2007
Garðar Sigurjónsson rafveitustjóri í Vestmannaeyjum er látinn
Garðar Sigurjónsson, fyrrverandi veitustjóri í Vestmannaeyjum lést 3. júní s.l.
Garðar fæddist í Vestmannaeyjum 22. október 1918.
Garðar tók við starfi rafveitustjóra í Eyjum árið 1946. Þetta var á miklum umbrotatímum hjá rafveitunni, breytingar úr jafnstraum í riðstraum og bygging nýrrar rafstöðvar við Heimatorg stóðu yfir. Garðar var rafveitustjóri í Eyjum á Heimaeyjargosinu 1973. Hann hætti vegna aldurs í byrjun árs 1986.
Eiginkona hans var Ásta Kristinsdóttir, sem lést 29. október s.l. og áttu þau tvö börn.
21.05.2007
Fagfundur Raforkusviðs Samorku í Vestmannaeyjum 31. maí og 1. júní.
Fagfundi raforkusviðs Samorku í Vestmannaeyjum er lokið. Dagskrá var fjölbreytt og fróðleg.
Með því að smella á hlekkinn "Lesa meira" hér að neðan má sjá dagskrá fundarins og með því að smella á nöfn fyrirlesara má skoða fyrirlestraglærurnar.
Lesa meira...
19.05.2007
Uppspretta verðmæta, þekkingar og lífsgæða
Mikil umræða hefur farið fram hérlendis undanfarin ár um jafnvægi milli nýtingar á orkulindum annars vegar og náttúruverndar hins vegar. Flestir ef ekki allir munu sammála um mikilvægi verndunar. Jafnframt viljum við halda áfram að nýta okkar ríku auðlindir. Verði það ekki gert náum við ekki að viðhalda og þróa áfram þá miklu þekkingu sem við búum yfir á sviði nýtingar endurnýjanlegra orkulinda og halda þannig áfram að bæta lífskjör í landinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í inngangsávarpi Franz Árnasonar, formanns Samorku, í blaðinu Íslensk orka sem dreift er með Morgunblaðinu. Í blaðinu fjallar Franz m.a. um þekkingu í orkuiðnaði, endurnýjanlegar orkulindir, loftslagsmál og lágt raforkuverð á Íslandi.
Lesa meira...
04.05.2007
Virkjanir og ferðaþjónusta
Hátt í eitt hundrað þúsund manns heimsækja íslensk orku- og veitufyrirtæki á ári hverju, einkum virkjanir. Ennfremur bendir allt til að mikil fjölgun sé framundan í þessu samhengi, ekki síst í tengslum við væntanlega opnun Heillisheiðavirkjunar í nágrenni Reykjavíkur. Hluti þessara gesta eru raunar ekki ferðamenn í hefðbundnum skilningi, heldur erlendir gestir úr heimum vísinda, viðskipta og stjórnmála, sem í fjölmörgum tilfellum hafa jafnvel komið hingað til lands gagngert til að kynna sér nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa hér á landi.
Lesa meira...
27.04.2007
Málþing um slys af völdum rafmagns
Málþing fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnana og fagfólk í rafiðnaði
Aðalfyrirlesarar: Bo Vejerstad yfirlæknir og Lars Ole Goffeng sérfræðingur, báðir frá Statens arbeidsmiljøinstitutt í Noregi.
Dagsetning og tími: föstudagur 4. maí frá kl. 08.30 - 15.30.
Staður: Askja, húsi náttúruvísinda við Háskóla Íslands og hefst kl 08.30.
Lesa meira...
18.04.2007
Formaður SA: Orkusala til erlendra stórfyrirtækja arðsöm frestun á uppbyggingu orkufreks hátækniiðnaðar yrði ótrúleg skammsýni
Því hefur verið haldið fram, að erlend stórfyrirtæki sæki hingað til lands vegna þess að rafmagn sé fáanlegt á gjafverði. Hið rétta er, að verðið stendur undir þeim kostnaði, sem öflun orkunnar hefur í för með sér, og skilar eigendum orkufyrirtækjanna hæfilegum arði. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Ingimundar Sigurpálssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á aðalfundi samtakanna. Ingimundur fjallaði meðal annars um fjárfestingu í orkuöflun og uppbyggingu orkufreks hátækniiðnaðar sem legði drög að útflutningstekjum til langrar framtíðar, um hátekjustörf í slíkum greinum og sagði að mikill árangur undanfarinna áratuga á íslenskum vinnumarkaði hefði að stórum hluta verið borinn uppi af auknum umsvifum í orkufrekum hátækniiðnaði og afleiddum áhrifum þeirra. Ingimundur sagði það ótrúlega skammsýni ef íslensk stjórnvöld létu sér detta í hug að gefa út yfirlýsingu um það, að nú skyldi öllum hugmyndum um orkufrekan hátækniiðnað slegið á frest.
Lesa meira...
13.04.2007
2,3 milljarðar til landeigenda milljarður í umhverfisverkefni
Orku- og veitufyrirtæki greiddu samtals um 2,3 milljarða króna til landeigenda og veiðirétthafa á árunum 2001-2006, vegna landnota. Á sama tíma greiddu fyrirtækin rúman milljarð króna vegna sérstakra verkefna á eigin vegum á sviði umhverfismála, svo sem vegna landbætingar, göngustígagerðar og hreinsunarverkefna. Loks greiddu fyrirtækin á sama tíma yfir 500 milljónir króna í styrki til annarra aðila vegna rannsókna og vísinda, sem meðal annars tengdust umhverfismálum.
Lesa meira...
13.04.2007
Norska orkuveitusambandið heldur HMS deildarfund á Íslandi
Norska orkuveitusambandið EBL heldur deildarfund um heilbrigði, umhverfi og öryggi á vinnustað (HMS) 10. og 11. maí n.k. á Radison SAS hótel Sögu í Reykjavík.
Víst er að þarna er um mjög svo áhugaverða ráðstefnu að ræða. Nálægt 100 fulltrúar sækja fundinn og koma frá orkufyrirtækjum frá öllu landinu.
Fjallað er um öryggismál , umhverfismál og vinnuumhverfi á víðum grundvelli.
Auk norsku fyrirlesaranna fræða nokkrir íslenskir fyrirlesarar frændur vora um íslensk orkumál og atvinnulífsmenningu.
Íslensku orkufólki er gefinn kostur á þátttöku.
Lesa meira...
10.04.2007
500 ársverk verk- og tæknifræðinga - yfir 15 milljarðar í rannsóknir, hönnun og vísindi
Samorka hefur tekið saman upplýsingar um fjölda háskólamenntaðra í hópi starfsfólks aðildarfyrirtækja sinna, sem og um fjármagn sem þessi fyrirtæki verja til rannsókna, hönnunar og vísinda. Tilefnið er hávær umræða þar sem orkufyrirtækjum er ítrekað stillt upp sem andstæðu við svonefnd þekkingarfyrirtæki, þrátt fyrir tíðar fréttir af útrás orkuþekkingar. Ljóst er að engin innistæða getur talist fyrir því að stilla íslenskum orku- og veitufyrirtækjum upp sem einhvers konar andstæðu við þekkingarfyrirtæki. Þannig má nefna að á árunum 2001 til 2006 vörðu þessi fyrirtæki yfir 15 milljörðum króna til rannsókna, hönnunar og vísinda. Þá voru 730 ársverk háskóla- og tæknimenntaðra hjá íslenskum orku- og veitufyrirtækjum á liðnu ári, þar af 500 ársverk verk- og tæknifræðinga.
Lesa meira...
02.04.2007
Auglýst eftir erindum á Norræna fráveituráðstefnu

Norrænu vatns og fráveitusamtökin standa fyrir sinni tíundu fráveituráðstefnu 12 14 nóvember nk. í Hamar í Noregi. Efni ráðstefnunnar verður um nýjustu tækni í hreinsun skolps, meðhöndlun seyru, rekstur hreinsistöðva, rekstur fráveitukerfa og hrörnun þeirra, EB tilskipanir er varða fráveitur og hvaða eiturefni það eru sem valda mestum usla.
Lesa meira...
26.03.2007
Er Finnland fyrirmynd?
Á blaðamannafundi Íslandshreyfingarinnar á dögunum var því haldið fram að Finnar væru fegnir því að hafa hætt við virkjanaframkvæmdir og þess í stað einblínt á hátækni- og þekkingariðnaðinn. Helmingurinn af raforku Finna kemur frá brennslu jarðefnaeldsneyta og fjórðungur frá kjarnorku. Það er rétt að líkt og Íslendingar hafa Finnar náð miklum árangri á sviði efnahagsmála og hagvöxtur þar hefur nálgast þann mikla hagvöxt sem við höfum notið. Það er hins vegar hæpið að nokkur maður telji Finnland vera Íslandi fyrirmynd hvað varðar orkubúskap. Á Íslandi er nýting endurnýjanlegra orkulinda dæmi um hátækni- og þekkingariðnað.
Lesa meira...
22.03.2007
Dagur vatnsins og Þúsaldarmarkmið SÞ erindin af ráðstefnu Samorku
Fimmtudagurinn 22. mars var alþjóðlegur dagur vatnsins. Í ár höfðu Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að baráttan gegn vatnsskorti yrði þema dagsins, til samræmis við Þúsaldarmarkmið samtakanna um markvisst alþjóðlegt samstarf til að auka lífsgæði íbúa í verst settu ríkjum heims, meðal annars með auknu aðgengi að hreinu vatni. Samorka stóð af þessu tilefni fyrir ráðstefnu í Orkuveituhúsinu á degi vatnsins í ár, í samstarfi við íslenska aðila í þróunaraðstoð og fleiri. Fjöldi fróðlegra erinda var fluttur á ráðstefnunni og þau má nú nálgast hér á vef Samorku.
Lesa meira...
22.03.2007
Fimm þúsund börn á dag, 54 þúsund milljarðar króna á ári!
Um 18% jarðarbúa hafa ekki aðgang að öruggu drykkjarvatni og um 41% hefur ekki aðgang að viðunandi frárennslisaðstöðu. Talið er að í heiminum öllum láti fimm þúsund börn lífið á degi hverjum vegna skorts á öruggu neysluvatni. Þetta er kreppa sem áætlað hefur verið að kosti í peningum talið um 54 þúsund milljarðar króna á ári. Þetta er hins vegar kreppa sem hægt er að leysa, sagði María J. Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Samorku, á ráðstefnu samtakanna um Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlegum degi vatnsins.
Lesa meira...
22.03.2007
Samorka styrkir gerð brunna í Afríku - hreint vatn fyrir allt að 4.000 manns
Samorka hefur ákveðið að styrkja vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku um kr. 600.000, eða sem nemur kostnaði við gerð fjögurra brunna sem samtals munu sjá allt að fjögur þúsund manns fyrir aðgangi að hreinu neysluvatni. Styrkurinn var afhentur á ráðstefnu Samorku um Ísland og Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna í vatns- og fráveitumálum, sem haldin var á alþjóðlegum degi vatnsins 22. mars. Það var Eiríkur Bogason framkvæmdastjóri Samorku sem afhenti styrkinn Jónasi Þ. Þórissyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar.
Lesa meira...
22.03.2007
Um raforkuverð til stóriðju
Varla líður sá dagur að ekki sé fullyrt í viðtölum og blaðagreinum að íslensk orkufyrirtæki sjái stóriðjufyrirtækjum fyrir raforku á útsöluverði, gjafverði eða einhverju álíka. Iðulega er fullyrt að verðið hér sé með allra lægsta móti í alþjóðlegum samanburði og loks er því gjarnan haldið fram að íslenskur almenningur, fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði þetta meinta ódýra rafmagn til stóriðju með hærra raforkuverði en ella. Svo hljóða inngangsorð að Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samorku. Hann segir þennan málflutning ekki standast neina skoðun.
Lesa meira...
19.03.2007
Standast forsendur í sáttmála Framtíðarlandsins?
Það geta væntanlega allir tekið undir með Framtíðarlandinu um að hér skuli byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag þar sem hugvit og sköpunargleði einstaklinga fái að njóta sín. En það stenst enga skoðun að stilla nýtingu endurnýjanlegra orkulinda eða uppbyggingu stóriðju upp sem einhvers konar hindrunum við þessa jákvæðu framtíðarsýn. Nýtingu endurnýjanlegra orkulinda hefur verið lýst sem fyrsta hátækniiðnaðinum hér á landi og íslensk orkuþekking er nú virkjuð um heim allan. Þá verður ekki fallist á þá kenningu að efnahagsþensla undanfarinna ára verði öll rakin til orku- eða áliðnaðar. Loks er Ísland í einstakri stöðu hvað varðar hátt hlutfall endurnýjanlegra orkulinda og Evrópusambandinu fyrirmynd að því leyti, ekki öfugt.
Lesa meira...
16.03.2007
Dagur vatnsins - Þúsaldarmarkmið SÞ, ráðstefna Samorku fimtudaginn 22. mars
Fimmtudagurinn 22. mars er alþjóðlegur dagur vatnsins. Í ár hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að baráttan gegn vatnsskorti verði þema dagsins, til samræmis við Þúsaldarmarkmið samtakanna um markvisst alþjóðlegt samstarf til að auka lífsgæði íbúa í verst settu ríkjum heims, meðal annars með auknu aðgengi að hreinu vatni. Samorka mun af þessu tilefni standa fyrir ráðstefnu í Orkuveituhúsinu á degi vatnsins í ár, í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun og félagasamtök sem vinna að þróunaraðstoð í vatnsveitu- og fráveitumálum
Lesa meira...
16.03.2007
Hrein orka, þekkingariðnaður, sparnaður í olíuinnflutningi
Ísland er í einstakri stöðu með 72% hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa. Á heimsvísu er meðaltalið 13% og 6-7% í Evrópusambandinu, en hlýnun lofthjúps jarðar er ekki síst rakin til brennslu jarðefnaeldsneytis á borð við olíu og kol. Virkjun raforku á Íslandi hefur verið lýst sem fyrsta hátækniiðnaðinum hér á landi og í dag er íslensk þekking á sviði nýtingar endurnýjanlegra orkugjafa virkjuð um heim allan. Þá greiða veitufyrirtæki þriðju hæstu meðallaun á landinu og hitaveitur spara þjóðarbúinu 10 til 20 milljarða króna á ári sem ella færu í olíuinnflutning.
Lesa meira...
05.03.2007
Dagur vatnsins 22. mars nk - ráðstefna Samorku
Fimmtudagurinn 22. mars er alþjóðlegur dagur vatnsins. Í ár hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að baráttan gegn vatnsskorti verði þema dagsins, til samræmis við Þúsaldarmarkmið samtakanna um markvisst alþjóðlegt samstarf til að auka lífsgæði íbúa í verst settu ríkjum heims, meðal annars með auknu aðgengi að hreinu vatni. Samorka mun af þessu tilefni standa fyrir ráðstefnu í Orkuveituhúsinu á degi vatnsins í ár, í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun og félagasamtök sem vinna að þróunaraðstoð í vatnsveitu- og fráveitumálum.
Lesa meira...
01.03.2007
Efasemdir um loftslagsmarkmið ESB
Evrópusamtök atvinnulífsins lýsa yfir áhyggjum af því að ekkert liggi fyrir um hvernig eigi að ná háleitum markmiðum Evrópusambandsins á sviði orku- og loftslagsmála og leggja á það áherslu að einhliða aðgerðir af hálfu ESB geti einfaldlega haft þau áhrif að draga úr samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs. ESB hefur sem kunnugt er sett sér markmið um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 20% fyrir árið 2020. Jafnframt hefur ESB sett sér markmið um að fyrir árið 2020 verði hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkunotkun innan sambandsins orðið 20%, en þetta hlutfall er nú um 6-7%. Þess ber að geta að á Íslandi er þetta sama hlutfall nú 72%.
Lesa meira...
25.02.2007
Nýting fallvatna og jarðhita í sátt við umhverfið ráðstefna 1. mars
Fimmtudaginn 1. mars standa VFÍ og TFÍ fyrir ráðstefnu á Grand Hótel um nýtingu fallvatna og jarðhita í sátt við umhverfið. Ráðstefnan er haldin með stuðningi Samorku o.fl., og hana munu meðal annarra ávarpa Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra.
Lesa meira...
21.02.2007
Hrein orka og hlýnun loftslags
Um allan heim er lögð áhersla á mikilvægi þess að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa, en þar er Ísland í einstakri stöðu, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, meðal annars í grein í Morgunblaðinu. Í greininni fjallar Gústaf m.a. um ályktun aðalfundar Samorku um loftslagsmálin, Ísland og endurnýjanlega orkugjafa.
Lesa meira...
09.02.2007
Loftslagskvótar myndu auka verðmæti orkulinda okkar
Tími ódýrs jarðefnaeldsneytis er liðinn og loftslagið þolir ekki meiri útblástur, sagði Þorkell Helgason orkumálastjóri í erindi á fundi Samorku. Hann sagði vonandi nást samstaða þjóða á meðal um kröftuga stjórn á loftslagsmálum og að æskilegast væri að það yrði með almennum framseljanlegum losunarkvótum. Markaðsöflin myndu þá sjá til þess að lausnir yrðu fundnar. Við Íslendingar erum í grundvallaratriðum vel settir í þessu samhengi. Við þurfum ekki að óttast loftslagskvóta; þvert á móti auka þeir verðmæti orkulinda okkar. Við ættum því að fagna slíku fyrirkomulagi, sagði Þorkell meðal annars, og bætti því við að við ættum að hasla okkur völl í alþjóðasamfélaginu á sviði vistvænnar orku.
Lesa meira...
09.02.2007
Franz Árnason nýr formaður Samorku
Á aðalfundi Samorku var Franz Árnason, Norðurorku, kjörinn formaður stjórnar og tekur hann við formennsku af Friðrik Sophussyni, Landsvirkjun. Þórður Guðmundsson, Landsneti, kemur nýr í stjórn í stað Kristjáns Haraldssonar, Orkubúi Vestfjarða. Kristján er varamaður í nýrri stjórn og kemur þar inn í stað Páls Pálssonar, Skagafjarðarveitum.
Lesa meira...
09.02.2007
Aðalfundur Samorku ályktar um loftslagsmál
Ísland er í einstakri stöðu en hér eru nú um 72% heildarorkunýtingar fengin frá endurnýjanlegum orkugjöfum, og nær 100% ef horft er til raforkuframleiðslu og húshitunar. Útstreymi gróðurhúsalofttegunda vegna nýtingar þessara endurnýjanlegu orkulinda er hverfandi samanborið við brennslu jarðefnaeldsneytis. Þetta hefur alþjóðasamfélagið viðurkennt og með sérstakri samþykkt við svonefnda Kyoto-bókun við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna var Íslandi heimilað að auka útstreymi vegna einstakra iðjuvera, enda yrðu loftslagsáhrif af starfsemi þessara iðjuvera annars staðar mun meiri en hér á landi. Nýlega var nefnt dæmi um sjöfalda losun gróðurhúsalofttegunda vegna álvers sem byggir á orku frá kolum, miðað við álver sem nú er verið að reisa hér á landi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun aðalfundar Samorku um loftslagsmál.
Lesa meira...
09.02.2007
Heimurinn allur undir
Vegna hlýnunar á lofthjúpi jarðar er nú um allan heim lögð áhersla á mikilvægi þess að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa, sem ekki losa gróðurhúlofttegundir eins og jarðefnaeldsneyti á borð við olíu og kol. Fyrirtækið Geysir Green Energy hefur sett sér það markmið að verða alþjóðlega leiðandi fyrirtæki á sviði jarðvarma. Fyrirtækið leitar markaðstækifæra í virkjun jarðvarma, fjárfestir í þróun og smíði jarðvarmavirkjana, yfirtekur jarðvarmavirkjanir í eigu orkufyrirtækja og tekur þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja víðs vegar um heiminn. Markaðssvæðið er heimurinn allur. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Ásgeirs Margeirssonar, forstjóra Geysir Green Energy, á fundi Samorku.
Lesa meira...
05.02.2007
Sérstaða Íslands í loftslagsmálum
Enginn vafi er á að bæði einstaklingar og atvinnulíf munu finna fyrir auknum kröfum um að dregið verði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á næstu árum og áratugum, segir í pistli á vef Samtaka atvinnulífsins. Þar segir jafnframt meðal annars: Atvinnulíf á Íslandi stendur hins vegar almennt vel að vígi á þessu sviði m.a. vegna þess að raforkuframleiðsla á Íslandi veldur ekki útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur bent á að loftslagsbreytingar megi fyrst og fremst rekja til brennslu jarðefnaeldsneytis, landbúnaðar og breytinga á landnotkun. Alþjóðasamfélagið hefur jafnframt viðurkennt sérstöðu Íslands sem felst í nýtingu á endurnýjanlegum orkulindum, t.d. við framleiðslu á áli sem feli í sér minni áhrif á veðurfarskerfi heldur en almennt gerist með álframleiðslu annars staðar í heiminum.
Lesa meira...
05.02.2007
Aðalfundur Samorku 9. feb. 2007
Aðalfundur Samorku fyrir árið 2006 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík 9. feb. n.k. Bryddað verður upp á þeirri nýjung, að bjóða til fundar nokkrum góðum gestum úr þjóðlífinu.
Lesa meira...
30.01.2007
Fyrsti hátækniiðnaðurinn á Íslandi
Nýting endurnýjanlegra orkulinda er gott dæmi um hátækni- og þekkingariðnað sem styður jafnframt við aðrar slíkar atvinnugreinar og stuðlar þannig með fjölbreyttum hætti að öflugu mennta-, rannsókna- og nýsköpunarumhverfi fyrir íslenskt atvinnulíf, segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, í grein í Morgunblaðinu. Í greininni fjallar hann um nýtingu endurnýjanlegra orkulinda sem þekkingariðnað og vitnar m.a. til orða Ágústar Valfells, lektors við Háskólann í Reykjavík, sem hefur lýst virkjun raforku og álframleiðslu sem fyrsta hátækniiðnaðinum á Íslandi.
Lesa meira...
26.01.2007
Öryggi og heilbrigði á vinnustað Allra hagur
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf og Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. standa fyrir námstefnu þann 31. janúar n.k. undir yfirskriftinni ,,Öryggi og heilbrigði á vinnustað Allra hagur sjá nánar í meðfylgjandi dagskrá.
Lesa meira...
19.01.2007
Ný reglugerð um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum
Vinnueftirlitið stendur fyrir ráðstefnu um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum þriðjudaginn 23. janúar kl. 13-16 á Grand Hótel. Á ráðstefnunni verða kynnt ný ákvæði um skyldu atvinnurekenda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað.
Lesa meira...
10.01.2007
ESB: 20% orku verði endurnýjanleg árið 2020
ESB: 20% orku verði endurnýjanleg árið 2020
á Íslandi er hlutfallið rúm 70% og fer vaxandi
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur sett sér markmið um að árið 2020 verði 20% orkunotkunar innan sambandsins fengin frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Árið 1997 setti ESB sér markmið um að árið 2010 yrði þetta hlutfall 12%, en nú mun ljóst að það markmið muni ekki nást. Á Íslandi er þetta sama hlutfall hins vegar rúm 70% og fer vaxandi með tilkomu nýrra gufu- og vatnsaflsvirkjana.
Lesa meira...
11.12.2006
Nýr starfsmaður til Samorku
Á nýafstöðnum veitustjórafundi var tilkynnt, að Gústaf Adolf Skúlason hefði verið ráðinn til starfa hjá Samorku.
Lesa meira...
27.11.2006
Að festast í heygarðshorninu, blaðagrein um rafsegulgeislun.
Þann 29. október s.l. birtist athyglisverð grein í Morgunblaðinu eftir Gunnlaug Björnsson stjarneðlisfræðing og vísindamann við Háskóla Íslands.
Lesa meira...
02.11.2006
Veitustjórafundur 2006 verður 7. des. á Grand Hótel Reykjavík
Nánari upplýsingar,
Lesa meira...
Orkuþing 2006 stóð dagana 12. og 13. okt.
Hér má lesa þá fyrirlestra sem birtir eru í þingbókinni, ORKUÞING 2006.
Einnig eru allar glærukynningar þingsins aðgengilegar með því að smella á nafn viðkomandi flutningsmanns á dagskrá þingsins hér á heimasíðunni.
Lesa meira...
ORKUÞINGI 2006 hefst fimmtudaginn 12. okt. kl. 8.50
og fer fram á Grand Hótel Reykjavík
SJÁ DAGSKRÁ ÞINGSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SKOÐA "LESA MEIRA"
Lesa meira...
14.08.2006
Tæknilegir Tengiskilmálar Rafdreifingar-TTR
TTR- tæknilegir Tengiskilmálar Rafdreifingar hafa verið endurskoðaðir og birtir í stjórnartíðindum.
Lesa meira...
17.07.2006
Hitaveita í Álaborg og Lögstör heimsótt
Það kostar um 7.320 DKK á ári að hita 150 fermetra einbýlishús með hitaveitu í Álaborg.
Hitaveitufólk heimsótt nýverið Hitaveituna í Álaborg og Lögstör rörafyrirtækið. Hjá Lögstör var haldin sýnikennsla í samsetningu hitaveituröra og fengu þátttakendur að reyna færni sína. Myndin sýnir Guðmund Davíðsson á Egilsstöðum reyna hvað krumpuefnið þolir og aðrir hitaveitumenn horfa á.
Lesa meira...
11.07.2006
Valgarður Stefánsson látinn
Valgarður Stefánsson jarðeðlisfræðingur lést aðfararnótt 10. júlí.
Valgarður starfaði á skrifstofu Samorku frá árinu 2004, sem framkvæmdastjóri Alþjóðajarðhitasambandsins IGA.
Lesa meira...
28.06.2006
Freysteinn fær John Snow verðlaunin
Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur á Orkustofnun var heiðraður á Norræni vatnsveituráðstefnu sem haldin var nýlega á vegum Samorku og systrasamtaka vatnsveitna á Norðurlöndum. Hann fékk hin norrænu John Snow Pump Handle Award ársins 2006. Það var Ivar Kalland fulltrúi John Snow Society í Noregi sem afhenti Freysteini verðlaunin.
Lesa meira...
05.06.2006
Öruggt drykkjarvatn - góð mæting á ráðstefnuna
Haldin var áhugaverð ráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík 8. - 9. júní á vegum Samorku og systrasamtaka á Norðurlöndum. Efni ráðstefnunnar var um hvernig eigi að tryggja öryggi drykkjarvatns. Fjallað var um vatnsborna faraldra á Norðurlöndum og viðbragðsáætlanir. Fundarbók er fáanleg á Samorku.
Lesa meira...
15.05.2006
Áhrif veðurfarsbreytinga á endurnýjanlegar orkulindir
Haldin verður ráðstefna í Reykjavík undir heitinu European Conference on Impacts of Climate Change on Renewable Energy Sources, Eurenew 5. - 9. júní nk.
Lesa meira...
05.04.2006
Seminar on Energy Resources and Energy Production in Iceland
Seminar on Energy Resources and Energy Production in Iceland.
Science Museum London: PURE ICELAND March 16, 2006.
Click here
Lesa meira...
04.04.2006
Netorka hf hefur tekið í notkun hugbúnaðarkerfi fyrir frjáls viðskipti með raforku
3. apríl tók NetOrka formlega í notkun hugbúnaðarkerfi fyrir frjáls viðskipti með raforku. Fyrirtækið er hlutafélag í eigu raforkufyrirtækjanna og mun annast allar tilkynningar og flutning gagna sem varða hin frjálsu viðskipti sem tekin hafa verið upp á Íslandi.
Lesa meira...
30.03.2006
Góður árangur af jarðhitaleit
Íslenskar orkurannsóknir héldu ársfund sinn fyrir skömmu á Egilsstöðum. Þar var sagt frá starfsemi fyrirtækisins og einnig helstu verkefnum á Austurlandi. Á myndinni er sýnt vatnsból Egilsstaða. Velta ISOR árið 2005 var um 560 milljónir króna og hagnaður ársins var um 14 milljónir. Unnið hefur verið að stefnumótun og greindar framtíðarhorfur og sóknarfæri. Einnig hefur verið gerð starfsmannastefna og jafnréttisáætlun sem nú er unnið eftir. Þetta var velheppnaður fundur og mörg fræðandi erindi flutt. Iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir ávarpaði fundinn.
Lesa meira...
14.03.2006
Samningur milli Lagadeildar Háskóla Íslands og Samorku
Þann 3. mars s.l. var undirritaður samningur milli Lagadeildar Háskóla Íslands og Samorku um stofnun stöðu lektors við kennslu og rannsóknir í auðlindarétti við Lagadeild Háskóla Íslands.
Lesa meira...
14.03.2006
Aðalfundur Samorku 10. mars 2006
Aðalfundur Samorku fyrir árið 2005 var haldinn í stjórnstöð Landsnets við Bústaðaveg 10. mars s.l.
Lesa meira...
24.02.2006
Fuglaflensa í neysluvatni - er ástæða til að hafa áhyggjur?
Ýmsir hafa verið að velta því fyrir sér hvort hætta sé á að fuglaflensa berist með neysluvatni. Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu hefur slíkt smit ekki átt sér stað og talið ólíklegt að sú hætta sér fyrir hendi.
Lesa meira...
31.01.2006
Nýtt vatnsból á Flúðum tekið í notkun
Í desember sl. var tekið í notkun nýtt vatnsból fyrir Vatnsveitu Flúða. Vatnsveitan hefur stækkað mikið á undanförnum árum og þjónar nú nær allri sveitinni, gróðurhúsarækt, sveitabýlum og sumarhúsum, alls um 700 manns. Á myndinni sést þegar verið er að fara yfir Litlu Laxá með lögnina. Heildarkostnaður við verkið var 35 Mkr en við það sparast dælukostnaður upp á 2 Mkr þar sem vatnið er sjálfrennandi að Flúðum.
Lesa meira...
30.01.2006
Orkulindin Ísland - Ráðstefna um áliðnaðinn
Ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu fór fram 27. jan. 2006 á Hótel Nordica.
Lesa meira...
20.01.2006
Einkennismerki Orkuþings 2006
Framkvæmdanefnd um Orkuþing 2006 hefur valið merki þingsins úr innsendum tillögum í samkeppninni sem fram fór meðal starfsfólks fyrirtækja og stofnana sem standa að þinginu.
Merkið sem varð fyrir valinu og hér birtist hannaði.....
Lesa meira...
11.01.2006
Hitaveitufréttir úr Skagafirði
Miklar framkvæmdir eru nú í hitaveitumálum í Skagafirði. Skagafjarðarveitur eru að leggja hitaveitu í Akrahrepp og þar bætast við 200 manns sem hafa hitaveitu. Fyrsti bærinn, Mið-Grund, var tengt rétt fyrir jólin. Á myndinni sést Gunnar Björn Rögnvaldsson, verkstjóri Skagafjarðarveitna, skrúfa frá. Veitan hefur nýverið yfirtekið Hitaveitu Hóla og einnig vatnsveituna þar. Og búið er að bora fyrir hitaveitu á Hofsós.
Lesa meira...
29.12.2005
Árið 2006 gengur í garð með opnun raforkumarkaðar
Nú um áramótin opnast raforkumarkaðurinn fyrir alla raforkukaupendur. Í dag 29. des. fór fram opinber kynning stjórnvalda á þessum tímamótum í raforkusögu þjóðarinnar.
Lesa meira...
16.12.2005
ORKUÞING 2006: Samkeppni um einkennismerki þingsins
Framkvæmdahópur um Orkuþing 2006 gengst fyrir samkeppni um einkennismerki fyrir þingið meðal starfsfólks allra þeirra fyrirtækja og stofnana sem koma að undirbúningi þess.
Lesa meira...
09.12.2005
Eldur í húsi Samorku
Í morgun, föstudag 9.des. kom upp eldur í kjallara Suðurlandsbrautar 48, þar sem Samorka er til húsa. Skemmdir eru engar á skrifstofu Samorku, en reykjarþefur er starfsmönnum til ama.
Lesa meira...
06.12.2005
Skrifstofumannanámskeið Samorku
Dagana 1.- og 2. des. fór fram námskeið fyrir skrifstofufólk veitnanna. Námskeiðið var haldið í fundarsal Samorku og var vel sótt. Það hefur komist á sú venja að halda slík námskeið annað hvert ár og njóta þau mikilla vinsælda, jafn vel svo að færri komast að en vilja.
Lesa meira...
06.12.2005
Veitustjórafundurinn 2005
Veitustjórafundurinn 2005 var haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 2. des. og var vel sóttur.
Lesa meira...
25.11.2005
Múlavirkjun á Snæfellsnesi, ný virkjun
24. nóv. var Múlavirkjun á Snæfellsnesi tekin formlega í notkun. Það er Straumfjarðará sem hefur verið virkjuð og gefur 3,2 MW. Virkjunin er hlutafélag þriggja bænda í héraðinu. Þrátt fyrir erfiðan vetur og ýmsar óvæntar tafir tók bygging virkjunarinnar aðeins eitt ár.
Lesa meira...
21.11.2005
Orkuveita Reykjavíkur fyrstir orkufyrirtækja með vottað umhverfisstjórnunarkerfi
Orkuveita Reykjavíkur fékk vottun 18. nóv. sl. á umhverfisstjórnunarkerfinu ISO 14001 og ryðja þar brautina eins og oft áður. Orkuveitan starfar þegar samkvæmt ISO 9001 gæðastaðli og HACCP innra eftirlitskerfi fyrir kalt vatn og var fyrsta vatnsveitan í heiminum sem tók upp slíkt kerfi. Í sumar hlaut Orkuveitan Kuðunginn, umhverfisverðlaun Umhverfisráðuneytisins.
Lesa meira...
16.11.2005
Máli um samráð röraframleiðenda í Danmörku lokið með sátt um bætur til fjögurra hitaveitna í Danmörku
Margra ára ferli og þriggja vikna málferlum í Danmörku er nú lokið með samkomulagi milli tveggja röraframleiðenda og fjögurra hitaveitna. Málsaðilar eru röraframleiðendurnir, Alstom Power Flow Systems A/S (áður ABB I.C. Möller A/S) og LR af 1998 A/S (áður Lögstör Rör A/S) og hitaveiturnar í Álaborg, Árósum, Kaupmannahöfn og Óðinsvéum. Samkomulagið hljóðar upp á að fyrirtækin greiða hitaveitunum 150 milljón danskar krónur í bætur.
Lesa meira...
08.11.2005
Flestar bilanir í heimæðum og inntökum
Samorka hélt fund 7. nóv. sl. um bilanaskráningu hitaveitna og vatnsveitna. Á fundinn mættu 17 manns frá 10 veitum. Þar var farið yfir niðurstöður bilanaskráningar hitaveitna fyrir árin 2003 og 2004. Þær niðurstöður voru bornar saman við samantekt fyrir árin 1993-95 og árið 2001. Á fundinum var kynnt þróun á forritinu fyrir vatnsveitur sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gert og stendur öðrum veitum í Samorku til boða. Einnig var rætt um frekari stækkun á forritinu þar sem skráðar verða bilanir á fráveitum og öllum viðhaldsverkefnum.
Lesa meira...
31.10.2005
Umhverfiskostnaður
Orkustofnun stóð fyrir ráðstefnu 27. okt. sl. um umhverfiskostnað og hvernig hann skuli metinn. Þar kom margt fróðlegt fram og flutt voru áhugaverð erindi. Á Íslandi var mikil fátækt ekki fyrir svo löngu síðan en það að við séum nú með ríkustu þjóðum má að miklu leyti þakka skynsamlegri nýtingu auðlinda. Það er bjart framundan ef litið er til hagvaxtar. Nú er það frekar mannauðurinn sem við horfum til og erum ekki lengur eingöngu háð því að nýta auðlindir landsins og getum leyft okkur að sinna umhverfisvernd.
Lesa meira...
15.10.2005
Orkusenatið heimsótti Kárahnjúkavirkjun
Orkusenatið - félag orkumanna af eldrikynslóðinni, fór í dagsferð í heimsókn að Kárahnjúkum og leit á mestu virkjanaframkvæmdir Íslandssögunnar.
Lesa meira...
10.10.2005
Vatnsveitufólk frá Ungverjalandi heimsótti Samorku
Ungverjar heimsóttu Samorku og voru fræddir um vatnsveitumál á Íslandi
Lesa meira...
28.09.2005
Hreinn ávinningur af umhverfisstjórnun
Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands, Umhverfisfræðsluráð og Samtök iðnaðarins stóðu fyrir ráðstefnu um umhverfisstjórnun 28. sept. Þar var fjallað um hin ýmsu umhverfisstjórnunarkerfi og ávinning af þeim. Fyrirtækin, sem höfðu komið upp slíku kerfi, voru sammála um að það hefði verið fyrirhafnarinnar virði og borgaði sig upp á skömmum tíma. Hagurinn væri bæði fyrirtækjanna og samfélagsins alls. Orkuveita Reykjavíkur verður fyrsta orkufyrirtækið með vottað ISO14001. Ráðstefnan var vel sótt með áhugaverð erindi og umræður.
Lesa meira...
28.09.2005
Skoðunarkönnun meðal rafvirkja
Könnun á umfangi slysa og óhappa af völdum rafmagns hjá fagmönnum á rafmagnssviði.
Lesa meira...
24.08.2005
RAFORKUSPÁ 2005-2030
Orkuspárnefnd hefur gefið út nýja raforkuorkuspá. Hún er aðgengileg hér á heimasíðunni.
Lesa meira...
22.08.2005
Námstefna um viðskipti með græna orku
Renewable Energy Certificate System (RECS) heldur, á vegum Samorku, eins dags námstefnu um vottun og meðhöndlun umhverfisvænnar orku.
Lesa meira...
03.06.2005
Veggspjald - RÉTT VIÐBRÖGÐ BJARGA MANNSLÍFUM
Samorka kynnir nýtt veggspjald um fyrstuhjálp við rafmagnsslys.
Lesa meira...
30.05.2005
Vorfundur Samorku 2005 á Akureyri
Vorfundur Samorku 2005 var haldinn á Akureyri dagana 26.- og 27. maí.
Lesa meira...
10.05.2005
Um rafsegulsvið
Í Morgunblaðinu, 30. apríl 2005 var grein um áhrif rafsegulsviðs á heilsufar manna, eftir Sigurð Guðmundsson landlækni.
Lesa meira...
09.02.2005
Aðalfundur Samorku 2005
Aðalfundur Samorku 2005 var haldinn á Selfossi 11. mars s.l.
Lesa meira...
01.02.2005
Orkuþing skóla
Í tilefni af Orkuþingi skóla hefur verið opnaður nýr og fróðlegur orkuvefur.
Lesa meira...
14.12.2004
Veitustjórafundur Samorku
Veitustjórafundur Samorku var haldinn föstudaginn 10. des. sl. á Grand Hótel í Reykjavík. Þar var fjallað um skipulagsmál Samorku í ljósi nýrra raforkulaga, lög og reglugerðir og helstu verkefni framundan. Meðfylgjandi er efni frá fundinum.
Lesa meira...
13.12.2004
Rafmagn á Íslandi í 100 ár
Á árinu 2004 voru liðin 100 ár frá því að Lækurinn í Hafnarfirði var virkjaður og rafmagni veitt í nærliggjandi hús. Þessi atburður er talinn marka upphaf rafvæðingar í landinu.
Lesa meira...
29.10.2004
Orkan okkar - heimili morgundagsins
Tæknidagar TFÍ og VFÍ 2004 eru haldnir í Vetrargarði Smáralindar dagana 28. október til 2. nóvember n.k. Tæknidagarnir eru helgaðir aldarafmæli rafvæðingar á Íslandi undir yfirskriftinni: Orkan okkar - heimili morgundagsins. Ráðstefna verður haldin tvo fyrstu dagana og sýning á tæknivæddu heimili framtíðarinnar verður alla dagana.
Lesa meira...
17.09.2004
Fundur um heilnæmt neysluvatn
150 ára ártíð Baráttu John Snow fyrir heilnæmu drykkjarvatni fyrir 150 árum var haldin hátíðlega á Íslandi af Samorku og Samtökum John Snow á Íslandi nú nýverið með hádegisverðarfundi á Grand Hótel í Reykjavík. Þar voru flutt tvö erindi. Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir ræddi um sýkingar sem berast með vatni og María J. Gunnarsdóttir sagði frá John Snow og baráttu hans. Fundarstjóri var Freysteinn Sigurðsson. Þátttakendur voru 35 talsins, vatnsveitumenn, heilbrigðisfulltrúar og sérfræðingar af Umhverfisstofnun og frá sýkingvarnardeild Landspítalans og Landlæknisembættinu.
Lesa meira...
10.09.2004
Verkstjórnarnámskeið 4.- og 5. okt.
Verkstjórnarnámskeið var haldið á Hótel Glym í Hvalfirði 4.- og 5.- okt.
Áherslur var lögð á heimlagnir, öryggismál og mannleg samskipti.
Lesa meira...
19.08.2004
Samkomulag um mat á verðmæti flutningsvirkja
Nefnd eigenda flutningsvirkja, sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði þann 4. júní s.l. hefur lokið störfum.
Lesa meira...
27.04.2004
Fyrrum forsvarsmenn orkuveitna stofna félag.
Þann 20. apríl sl. komu saman í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur menn sem á undanförnum áratugum hafa verið í forustusveitum hinna ýmsu orkuveitna landsins.
Lesa meira...
30.01.2004
Íslendingar taka að sér rekstur skrifstofu Alþjóðajarðhitasambandsins
Íslendingar taka að sér rekstur skrifstofu Alþjóðajarðhitasambandsins (International Geothermal Association, IGA) í fimm ár, frá 1. sept 2004. Samorka, samtök orkufyrirtækja á Íslandi, ásamt stjórnvöldum standa að flutningi og rekstri skrifstofunnar. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.
Lesa meira...
29.10.2003
Hitaveituhandbókin öll á netið
Nýtt efni er innra eftirlit fyrir hitaveitur - starfsleyf. Það er rammi að innra eftirliti til að halda utan um starfsleyfi og kröfur til þess . Sýnt er dæmi frá Orkuveitu Reykjavíkur.
Lesa meira...
Raforkusamtök Norðurlanda hafa stofnað samtökin Nordenergi.
Lesa meira...
22.09.2003
Jarðvarmahitaveita í Kaupmannahöfn 2004
Frá lokum árs 2004 á jarðhitinn að svara fyrir 1% af hitaveitunotkun í Kaupmannahöfn. Það samsvarar um 5000 heimilum.
Lesa meira...
19.09.2003
IGA skrifstofan til Íslands
IGA skrifstofan til Íslands
Íslendingar taka að sér rekstur skrifstofu Alþjóðajarðhitasambandsin (International Geothermal Association, IGA) í fimm ár, frá 1. sept 2004. Samningur um þetta var undirritaður á alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunni á Nordica Hótel 15. sept. s.l.
Lesa meira...
04.07.2003
Öryggishandbók
Samorka hefur útbúið öryggishandbók fyrir orkuveitur. Bókin er hugsuð sem hluti af öryggiskerfi veitna og byggir á handbók sem Orkuveita Reykjavíkur hefur notað um ára bil.
Lesa meira...
26.05.2003
Sæstrengur milli Noregs og Englands
Statnett í Noregi fyrirhugar að leggja sæstreng milli Noregs og Englands. Áætlanir gera ráð fyrir kostnaði upp á ISK 88 miljarða.
Lesa meira...
16.05.2003
Fagfundur hita- og vatnsveitna Samorku
Fagfundur hita- og vatnsveitna Samorku var haldinn á Selfossi 23.- og 24. maí s.l.
Lesa meira...
07.05.2003
Powel-kynning 13- og 14.maí um mælingar og meðhöndlun mæligagna
Þriðjudag 13.- og miðvikudag 14. maí sl. var á vegum Samorku haldin námsstefna í samvinnu við norska fyrirtækið POWEL um mælingar og meðhöndlun mæligagna í markaðsvæddu orkusölukerfi Noregs.
Lesa meira...
02.05.2003
Útskrift í jarðlagnatækni
Þann 28.mars s.l. fór fram útskrift í jarðlagnatæknináminu sem staðið hefur í vetur.
Lesa meira...
Á síðasta degi nýliðins þings voru samþykkt ný raforkulög. Lög þessi hafa verið nokkuð lengi í undirbúningi, að heita má frá áttunda áratug síðustu aldar. Lagagerðin átti nokkuð erfitt uppdráttar vegna áætlana um breytingar á skipulagi íslenskra orkumála.
Lesa meira...
28.04.2003
Lokun Barsebeck 2
Skorsteinar Stenungslund olíuorkuversins sótaðir að nýju?
Ein af tillögum stjórnvalda í Svíþjóð svo að unnt sé að standa við gefin loforð um lokun Barsebeck 2 er að tæplega hálfrar aldar gamalt olíuorkuver í Stenungslund verði ræst að nýju.
Lesa meira...
04.03.2003
Aðalfundur Samorku 2003
Aðalfundur Samorku 2003
Aðalfundur Samorku fyrir árið 2002 var haldinn í Félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur föstudaginn 14. mars
Lesa meira...
20.12.2002
Fréttabréf des. 2002
Fréttabréf Samorku hefur komið út frá stofnun samtakanna 1995.
Lesa meira...
16.12.2002
Samkeppnishæfni Íslands
Lægstur raforkukostnaður á Íslandi.
Athyglisverð könnun KPMG.
KPMG hefur nýlega gert samanburðarkönnun kostnaði við rekstur fyrirtækja. Könnunin er mjög viðamikil og nær til 87 borga Evrópu, Norður-Ameríku og Japan.
Lesa meira...
28.10.2002
Bilanaskráning hitaveitna - gagnlegur fundur
Samráðsfundur um bilanaskráningaforrit hitaveitna var haldinn miðvikudag inn 23. okt. sl. Þar komu fram ýmsar breytingatillögur. Forritið þjónar vel tilgangi sínum og breytingarnar munu bæta það enn frekar.
Lesa meira...
11.10.2002
Dæluhandfangsverðlaunin til Maríu Jónu Gunnarsdóttur
Norðurlandadeild John Snow samtakanna veittu Maríu Jónu Gunnarsdóttur deildarstjóra hjá Samorku verðlaunin fyrir þátt hennar í að koma upp gæðaeftirlitskerfi hjá íslenskum vatnsveitum.
Lesa meira...
08.10.2002
Dagur vatnsins - áhugaverður fundur
Þar var m.a. sagt frá hreinsunarstarfi Bláa hersins í höfnum á Suðurnesjum, nýlegri könnun á stöðu frárennslismál og nýjum lögum um verndun hafs og stranda.
Lesa meira...
11.09.2002
Jarðlagnatækni kennd einnig í fjarnámi
Boðið verður upp á jarðlagnatækni námið í fimmta skiptið í vetur. Áður hafa útskrifast 60 jarðlagnatæknar. Nú hefur fengist styrkur til að kenna námið í fjarnámi til viðbótar því sem verður kennt í Reykjavík. Sjá síðu
Lesa meira...
05.09.2002
Nýjar litamerkingar lágspennustrengja
Nú hefur tekið gildi nýr staðall SAM HD 308 S2 um litamerkingu lágspennustrengja. Nýir strengir sem fluttir eru til landsins eru flestir með þessari merkingu. Þarna er um svo veigamiklar breytingar að ræða að Samorka taldi rétt að gefa
Lesa meira...
24.06.2002
Gengið til samninga um kaup á ljósastaurum
Lokið er við að ganga frá samningum varðandi sameiginleg innkaup á ljósastaurum. Samið var við Sandblástur og málmhúðun á Akureyri.
Lesa meira...
22.05.2002
Fjölmennur og velheppnaður Vorfundur Samorku
Vorfundur Samorku 2002 fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri 30. og 31. maí.
Þetta er þriðji Vorfundur Samorku og sá fjölmennasti. Skráðir þátttakendur voru 400 þar með taldir þátttakendur í vöru-og þjónustusýningu sem fram
Lesa meira...
23.04.2002
Raforkuverðssamanburður 1. jan. 2002
Raforkuverðssamanburður EURELECTRIC 1. jan. 2002 er kominn út. Hægt er að nálgast skýrsluna hér á síðunni til hægri "Gjaldskrársamanburður" => "Rafmagn erlent".
Að þessu sinni taka 30 lönd þátt í samanburðinum. Gerður er samanbu
Lesa meira...
04.04.2002
Aðalfundur Samorku
Aðalfundur Samorku var haldinn 15. mars s.l. í Gvendarbrunnum. Fundurinn hófst með hádegisverði að Jaðri kl. 12.00.
Lesa meira...
03.04.2002
Útskrift jarðlagnatækna
Útskrift jarðlagnatækni
Þann 22. mars s.l. var útskrifað í fjórða sinn hópur nema í jarðlagnatækni. Að þessu sinn útskrifuðust 14 nemar og hafa þá samtals 60 manns lokið þessu námi fá upphafi.
Lesa meira...
02.04.2002
Dagskrá Nordvarmeþings komin á Netið
Næsta Nordvarmeþing verður haldið 10. til 11. júní nk. í Nyköping í Svíðþjóð. Þar verður fjallað um það sem efst er á baugi hjá norrænum hitaveitum. Dagskrá þingsins og skráningareyðublað er komin inn hér inn á Samorkusí
14.03.2002
Samsetningarnámskeið hitaveitna
Námskeið í samsetningum hitaveituröra
Samorka í samvinnu við Iðntæknistofnun stendur fyrir námskeiði í samsetningu hitaveituröra dagana 18. og 19. apríl n.k.
Lesa meira...
04.01.2002
Aðalfundur Samorku
Aðalfundur Samorku verður haldinn föstudaginn 15. mars í Gvendarbrunnum. Fundurinn hefst með skráningu og hádegisverði að Jaðri kl. 12.00.
23.10.2001
Orkumannvirki sem fellur vel að umhverfinu
Olís, Orkuveita Húsavíkur og Landsvirkjun fá viðurkenningu fyrir orkumannvirki sem fellur vel að umhverfinu.
Lesa meira...
27.09.2001
Orkuþing á fimm ára fresti
Velheppnað Orkuþing er ný afstaðið og þar mættu um 440 manns og fluttir voru yfir 100 fyrirlesarar. Ráðstefnubókin verður sett inn á netið.
Lesa meira...
07.09.2001
Ný neysluvatnreglugerð hefur tekið gildi
Ný neysluvatnsreglugerð tók gildi í sumar. Vatnsveitur sem þjóna 50 íbúum eða 20 heimilum eða fleiri eru háðar eftirliti.
Lesa meira...
17.07.2001
Leitað að jarðhita í Svíþjóð
Í Lundi í Svíþjóð hefur verið nýttur lághiti fyrir varmadælu í 15 ár. Nú eru uppi áform um dýpri boranir og meiri vinnslu.
Lesa meira...
22.06.2001
Sydkraft í Svíþjóð býður breiðbandið í haust
Sydkraft hefur boðað að þeir muni bjóða breiðbandið í haust á Málmeyjarsvæðinu og margar rafveitur er að fara í gang með að gera slíkt hið sama.
Lesa meira...
08.06.2001
Norræn vatnsveituráðstefna í Gautaborg á næsta ári
Ný EB tilskipun og norræn vatnsveituráðstefna var meðal þess sem rætt var á norrænum fundi 1. júni sl.í Reykjavík. Norræn ráðstefna verður haldin í þriðja sinn á næsta ári og nú í Gautaborg 2. - 3 september árið 2002.
Lesa meira...
07.06.2001
Nýr stöðvarstjóri í Blönduvirkjun
Rán Jónsdóttir felldi eitt vígi karlaveldisins þegar hún var ráðin yfirmaður í virkjun Landsvirkjunar. Samorka óskar Rán til hamingju og góðs gengis í nýju starfi.
Lesa meira...
05.06.2001
Orkubú Vestfjarða hf stofnað 1. júní 2001
Að loknum aðalfundi Orkubús Vesfjarða föstudaginn 1.6.01 var haldinn stofnfundur Orkubús Vestfjarða hf.
Lesa meira...
05.06.2001
Frábær fagfundur á Ísafirði
Raforkulagafrumvarpið var kynnt á fagfundi Samorku á Ísafirði og um það var fjallað frá ýmsum hliðum. Í setningarræðu formanns stjórnar Samorku kom fram að þótt hagsmunir raforkufyrirtækja fari ekki alltaf saman verður unnið að
Lesa meira...
17.05.2001
Vel heppnað samsetninganámskeið á Selfossi
Nú nýverið var haldið hið árlega vornámskeið um samsetningu hitaveituröra. Það var haldið hjá Set hf á Selfossi eins og á síðasta ári. Sjáið mynd af ánægðum þátttakendum.
Lesa meira...
14.05.2001
Sænska hitaveitusambandið áfram sem sér samband
Á aukaaðalfundi sænska hitaveitusambandsins 7. maí sl. var tillaga um að leggja niður sambandið og stofna nýtt með sænska orkusamband-
inu, Svensk Energi, felld.
Lesa meira...
09.05.2001
Raforkulagafrumvarp lagt fram á alþingi
Á aðalfundi RVFÍ 2. maí sl. kynnti Kristín Haraldsdóttir lögfræðingur í iðnaðarráðuneytinu frumvarp til raforkulaga sem lagt var fram á alþingi sama dag.
Lesa meira...
09.05.2001
Fjölsóttur fundur um skipulag raforkugeirans
Á samlokufundi VFÍ og TFÍ 8. maí sl. fór Bjarni Bjarnason, nýráðinn framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar, yfir breytingar á orkumarkaði með nýjum raforkulögum fyrir fullum sal af fólki.
Lesa meira...
07.05.2001
Borholunámskeið Samorku
Borholunámskeið Samorku var haldið 3. - 4. maí sl. Þátttakendur voru 13 talsins og leiðbeinendur voru Sverrir Þórhallsson og Árni Gunnarsson. Sjá mynd frá námskeiðinu.
Lesa meira...
02.05.2001
Viðurkenning fyrir framlag til umhverfismála
Ísland hlaut viðurkenningu bandarísku umhverfissamtakanna Global Green USA fyrir stefnu landsins í orkumálum. Davíð Oddsson forsætisráðherra veitti verðlaununum viðtöku í New York 25. apríl s.l. Ísland er meðal fimm aðila sem hlutu
Lesa meira...
24.04.2001
Jón og Jóhannes heiðursfélagar Jarðhitafélagins
Á fyrsta aðalfundi Jarðhitafélags Íslands voru Jón Jónsson, jarðfræðingur og Jóhannes Zoëga fyrrv. hitaveitustjóri kosnir fyrstu heiðursfélagar félagsins. Stefnt er að alþjóðaráðstefnu um fjölnýtingu jarðhita árið 2003.
Lesa meira...
10.04.2001
Ný neysluvatnsreglugerð að verða tilbúin í drögum
Ný neysluvatnsreglugerð er í smíðum í samræmi við EB tilskipun. Þar verða mikið fleiri vatnsveitur háðar eftirliti og upplýsingaskylda til neytenda verður afdráttarlausari.
Lesa meira...
10.04.2001
Hitaveita Hveragerðis til sölu
Á Fréttavef Suðurlands er sagt frá því að bæjarstjórn Hveragerðis hafi ákveðið að láta kanna með sölu á Hitaveitu Hveragerðis.
Lesa meira...
10.04.2001
Hvatt til aukins samráðs
Í ræðu sinni á samráðsfundi Landsvirkjunar minntist ráðherra á samráðsvettvang sem nokkur orkufyrirtæki og stofnanir stóðu að fyrir nokkrum árum.
Lesa meira...
05.04.2001
OR sigurvegari á námstefnu
Á námstefnu rafiðnaðarmanna veitufyrirtækja 29.-30. mars sl. kepptu 8 lið í samtengingu 4 x 240 mm2, 1 kV jarðstrengs. Sigurvegararnir Gestur Bjarnason og Magnús Gunnlaugsson komu frá Orkuveitu Reykjavíkur.
Lesa meira...
05.04.2001
Frumherji hf í Samorku
Á stjórnarfundi Samorku 5. apríl sl. var umsókn Frumherja hf um aukaaðild að samtökunum samþykkt. Starfsmenn og félagar Samorku óska Frumherja til hamingju með aðildina og vonast eftir ánægjulegu og árangursríku samstarfi.
Lesa meira...
05.04.2001
Drög að dagskrá komin fyrir Orkuþing 2001
Komin eru drög að dagskrá fyrir Orkuþing 2001. Flutt verða um 120 erindi þessa þrjá daga sem Orkuþing stendur yfir sem er dagana 11. til 13. október nk.
Lesa meira...
03.04.2001
Tvö hitaveitunámskeið og eitt vatnsveitunámskeið í byrjun maí
Í maí verða haldin tvö námskeið fyrir hitaveitur og eitt fyrir vatnsveitur. Sjá nánar hér til hægri.
Lesa meira...
29.03.2001
Vel viðráðanlegt verkefni að draga úr loftslagsmengun
Margar leiðir eru færar til þess að draga úr mengun vegna gróðurhúsaloft- tegunda, án þess að því fylgi óyfirstíganlegur kostnaður. Þetta kemur fram í niðurstöðu nýlegrar skýrslu milliríkjanefndar SÞ um loftslagsbreytingar
Lesa meira...
26.03.2001
Varað við að nota heitsinkhúðuð rör í neysluvatnslögnum hjá sumum veitum
Nýkomin er út áfangaskýrsla frá verkefninu Tæring og ryðmyndun í heitsink- húðuðum neysluvatnslögnum. Þar kemur m.a. fram að vara beri við að nota slík rör í neysluvatnslagnir frá Höfn til Norðfjarðar ásamt Borgarnesi.
Lesa meira...
21.03.2001
Pétursborg fær hreint drykkjarvatn
Samkvæmt veffréttum frá Norðurlandaráði fékk rússneska fyrirtækið Vodokanal fékk í gær í þriðja sinn verðlaun fyrir að bjóða besta drykkjarvatnið í Rússlandi, en það hreinsar skolpvatn í Pétursborg og endurnýtir.
Lesa meira...
21.03.2001
Jarðlagnatæknar útskrifast
Föstudaginn 16. mars útskrifuðust tólf jarðlagnatæknar. Útskriftin var haldin í Gvendarbrunnum.
Lesa meira...
21.03.2001
Nýr formaður Samorku
Á aðalfundi Samorku föstudag inn 16. mars sl. var Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur kosinn formaður samtakanna.
Lesa meira...
20.03.2001
Nýtt lagafrumvarp um hitaveitur fyrirhugað
Á aðalfundi Samorku sagði iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, frá því að hún hefði ákveðið að vinna við gerð lagafrumvarps um hitaveitur hefjist innan skamms.
Lesa meira...
15.03.2001
Af rafsegulsviðsmálum
Í nýrri breskri skýrslu um rafsegulsvið kemur ekkert fram sem kallar á aðgerðir til að verjast áhrifum rafsegulsviðs.
Lesa meira...
15.03.2001
Rannsóknir og tækniþróun
Stjórn Samorku hefur ákveðið að koma á fót starfshóp til að auka tengsl sérfræðinga á raforkusviði
Lesa meira...
15.03.2001
Starfshópur um gjaldskrárforsendur raforkudreifingar
Stjórn Samorku samþykkti á síðasta fundi sínum tillögu fagráðs raforkusviðs um stofnun starfshóps um gjaldskrárforsendur raforkudreifingar.
Lesa meira...
14.03.2001
Nordisk benchmarking 2000
Bæjarveitur Vestmannaeyja eru í meðalagi hagkvæmar miðað við 37 aðrar raforkudreifiveitur sem tóku þátt í Nordisk Benchmarking 2000.
Lesa meira...
14.03.2001
Námskeið um rekstur og viðhald aflspenna
Haldið var vandað námskeið um rekstur og viðhald aflspenna í febrúar. Farið var yfir ABB aðferðina við spennaviðhald.
Lesa meira...
Starfsleyfi fyrir orkuveitur - innra eftirlit fyrir hitaveitur
Hollustuvernd ríkisins er að vinna að leiðbeiningum og mun leggja fram drög að þeim í lok mars. Hitaveitur þurfað að fara að vinna að innra eftirliti.
Lesa meira...
|
|